Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Heitt jarðaberjasúkkulaði

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Vísir/Árni

Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 

Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna.

Þegar ég var yngri þá var það hefð hjá fjölskyldunni minni að drekka heitt súkkulaði með þeyttum rjóma þegar við bræðurnir vöknuðum á jóladagsmorgun. Ef við bræðurnir gerðum þau mistök að biðja um kakó þá voru foreldrar okkar snöggir að leiðrétta okkur, þetta var heitt súkkulaði. Þetta er er löngu innprentað í okkur bræðurna og nú erum við fljótir að leiðrétta okkar eigin börn þegar þau gera sömu mistök.

Þykkt heitt súkkulaði með gommu af þeyttum rjóma er alveg sígilt, klikkar aldrei. En stundum er gaman að breyta aðeins til. Hægt er að skipta suðusúkkulaðinu út fyrir hvítt súkkulaði en þá finnst mér drykkurinn of væminn, enda er þannig súkkulaði oft dálítið karakterlaust. Því þarf að bæta einhverju við til að bæta upp fyrir það. Hér nota ég maukuð jarðarber til að ljá hvíta súkkulaðinu eitthvað bragð en hægt væri að nota í raun hvaða ber sem er.

Innihald

Fyrir fjóra

300 grömm jarðarber, sneidd

100 grömm strásykur

500 millilítrar mjólk

500 millilítrar rjómi

200 grömm hvítt súkkulaði, grófsaxað

Leiðbeiningar

  1. Setjið jarðarberin í litla skál og veltið upp úr sykrinum. Látið standa í um 15 mínútur eða þar til jarðarberin eru orðin lin og sykurinn að mestu uppleystur. Maukið jarðarberin með töfrasprota, matvinnsluvél eða blandara.

  2. Blandið mjólkinni og rjómanum saman í potti og hitið yfir miðlungslágum hita. Ekki flýta þessu ferli því ef mjólkinn hitnar of hratt þá eru meiri líkur á að hún ysti þegar jarðarberin fara út í. Takið pottinn af hellunni og bætið hvíta súkkulaðinu út í. Hrærið þar til allt súkkulaðið er bráðið og látið blönduna kólna örlítið. Blandið maukuðu jarðarberjunum þá út í pottinn í nokkrum skömmtum og blandið vel saman. Hitið jarðarberjasúkkulaðið ofurhægt þar til það er nógu heitt til að drekka en hið fullkomna hitastig er tæpar 60°C. Passið mjög vel upp á að drykkurinn sjóði ekki því þá er nær öruggt að mjólkin ysti.

  3. Berið heitt súkkulaðið fram með glás þeyttum rjóma.


Tengdar fréttir

Aðventumolar Árna í Árdal: Kalkúnn

Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.

Aðventumolar Árna í Árdal: Skata

Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi kom öllum í rétta hátíðarskapið og reiddi fram einn rétt á dag fram að jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×