Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Hangikjöt

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Vísir/Árni

Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.  Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna.

Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Klippa: Hangikjöt - Aðventumolar Árna í Árdal

Innihald

1 hangilæri

1 dós grænar baunir

Rauðkál

1 rauðkálshaus (um 1,5 kíló)

100 grömm smjör

100 grömm púðursykur

200 grömm rifsberjahlaup

3 matskeiðar rauðvínsedik

100 millilítrar rauðvín

1 teskeið salt

Kartöfluuppstúf

30 grömm smjör

30 grömm hveiti

Safinn úr grænubaunadósinni

300 millilítrar köld mjólk

100 millilítrar rjómi

Sykur, eftir smekk

Salt, eftir smekk

Múskat, eftir smekk

700 gröm kartöflur, flysjaðar og soðnar

 

Leiðbeiningar

Hangilæri

Setjið hangilærið í pott af köldu vatni þannig að það fljóti yfir það. Setjið lok á pottinn og náið upp suðunni yfir miðlungshita. Látið kjötið malla í um 10 mínútur og slökkvið svo undir. Til að kjötið haldist safaríkt og meyrt ætti kjarnhitastig þess aldrei að fara yfir 70°C. Látið hangikjötið kólna í soðvatninu.



Rauðkál

  1. Fjarlægið ystu blöðin af rauðkálinu og skerið hausinn í fjórðunga. Fjarlægið stilkinn á hverjum fjórðungi og sneiðið kálið í þunnar ræmur.

  2. Bræðið smjör í stórum þykkbotna potti yfir háum hita og steikið rauðkálið í um 5 mínútur eða þar til það er aðeins farið að linast. Bætið púðursykri, rifsberjahlaupi, rauðvínsedikinu, rauðvíni og  salti.

  3. Náið upp suðunni við miðlungsháan hita og sjóðið rauðkálið í um 30 mínútur. Hrærið í pottinum af og til. Lækkið niður í miðlungslága hita og látið kálið malla í að minnsta kosti aðrar 30 mínútur eða þar til áferðin á rauðkálinu er ykkur að skapi. Rauðkálið ætti að vera dökkfjólublátt á lit og vökvinn orðinn að sírópi.



Kartöfluuppstúf

  1. Bræðið smjörið í litlum potti við vægan hita og  hrærið hveitinu saman við. Hrærið stöðugt í með písk, eldið í um 1 mínútu og bætið þá við safanum af grænu baununum. Blandan byrjar á að þykkna en þynnist svo út með mjólkinni.

  2. Hellið mjólkinni í mjórri bunu ofan í pottinn og hrærið í allan tímann. Verið viss um að fara vel í kanta pottsins til að leysa upp hveiti sem þar getur leynst. Bætið við rjóma og sykri. Hækkið í miðlungshita, náið upp suðunni hægt og rólega og hrærið stöðugt í.

  3. Lækkið undir pottinum í lægsta hita og látið malla í 5 mínútur eða þar til það er ekki lengur hveitibragð af sósunni. Bætið kartöflunum út í og hitið þær í gegn.


Tengdar fréttir

Aðventumolar Árna í Árdal: Kalkúnn

Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×