Erlent

Undarlegir og misheppnaðir uppreisnartilburðir

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn standa vörð á meðan bátur málaliðanna er dreginn að landi.
Hermenn standa vörð á meðan bátur málaliðanna er dreginn að landi. AP/Matias Delacroix

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ríkisstjórn sína ekki hafa komið að undarlegri valdaránstilraun sem stöðvuð var í Venesúela á sunnudaginn og mánudaginn. Tveir bandarískir fyrrverandi hermenn hafa verið handteknir þar í landi en Nicolás Maduro, forseti Venesúela, segir þá hafa verið aðila að valdaránstilraun og að þeir hafi ætlað að myrða hann með stuðningi Bandaríkjanna og Kólumbíu.

Mennirnir tveir heita Luke Denman og Airan Berry. Þeir eru báðir fyrrverandi sérsveitarmenn og hafa starfað hjá öryggisfyrirtækinu Silvercorp USA. Þeir voru handsamaðir undan ströndum Venesúela á sunnudaginn og sex aðrir voru skotnir til bana. Annar hópur var svo gómaður á mánudaginn

Þriðji Bandaríkjamaðurinn og stofnandi Silvercorp, Jordan Goudreau, segist hafa staðið við aðgerðina sem ku heita „Operation Gideon“. Goudreau hefur sagt að markmiðið hafi verið að handsama Maduro og aðgerðin hafi verið gerð í samstarfi við Juan Guaídó, sem leiðir stjórnarandstöðuna í Venesúela.

Guaídó segir það fjarri lagi að hann hafi átt í samstarfi við Silvercorp og Goudreau.

Hér má sjá tíst frá fréttakonu ríkisútvarps Venesúela. Það inniheldur myndband sem tekið var skömmu eftir að Bandaríkjamennirnir voru handsamaðir.

Í samtali við AP fréttaveituna hafa fyrrverandi félagar Goudreau í hernum lýst honum vel og sagt hann hafa verið góðan hermann. Árið 2013 var hann þó grunaður um að svíkja fé af hernum en málinu var lokað án ákæru.

Goudreau stofnaði Silvercorp USA í Flórída árið 2018, skömmu eftir árásina í Parkland, þar sem 17 voru skotnir til bana, og átti öryggisfyrirtækið að sporna gegn skotárásum í skólum, samkvæmt AP. Silvercorp vildi koma útsendurum fyrir í skólum svo þeir gætu brugðist við árásum.

Á vefsíðu Silvercorp USA segir að fyrirtækið hafi komið að aðgerðum í rúmlega 50 löndum og ráðgjafastjórn þess innihaldi fyrrverandi erindreka, hermenn og forstjóra alþjóðafyrirtækja. Enginn þeirra er þó nefndur á nafn.

Þar er því einnig haldið fram að fyrirtækið hafi leitt alþjóðleg öryggisteymi fyrir forseta Bandaríkjanna.

Erfitt er að segja um sannleiksgildi þess að fyrirtækið hafi leitt alþjóðleg öryggisteymi fyrir Donald Trump. Goudreau hefur þó komið að öryggisgæslu á kosningafundum Trump, miðað við myndband á síðu fyrirtækisins.

Rannsakendur Bellingcat hafa staðfest það frekar.

Á Instagramsíðu Silvercorp má sjá myndir af Goudreau berum að ofan með byssur, hann ferðast með einkaflugvél, á hlaupabretti og ýmislegt annað.

Hin undarlegasta valdaránstilraun

Það er erfitt að fanga í texta hve undarleg þessi valdaránstilraun er. Upphaf málsins má þó mögulega rekja til fréttar AP fréttaveitunnar sem birt var þann 1. maí. Hún fjallar um það að Goudreau hafi verið bendlaður við sambærilega valdaránstilraun í fyrra. Þá hafi 300 fyrrverandi hermenn frá Venesúela ætlað að lauma sér inn Venesúela frá Kólumbíu. Þeir hafi átt að koma af stað byltingu með því að ráðast á herstöðvar og fá aðra hermenn til að ganga til liðs við þá.

Drew White, fyrrverandi samstarfsmaður Goudreau í Silvercorp, segir hann alltaf hafa verið á eftir auðunnum auðæfum og ekkert sem hann hafi ætlað sér hafi nokkurn tímann gengið eftir.

White segir Goudreau hafa fengið mikinn áhuga á Venesúela eftir að hafa unnið við öryggisgæslu á tónleikum í febrúar 2019, sem skipulagðir voru af breska auðjöfrinum Richard Branson og voru til stuðnings Juan Guaídó.

Goudreau sagðist hafa viljað nýta sér aukinn áhuga ríkisstjórnar Trump á því að koma Maduro frá völdum. Hann kynntist Keith Schiller, fyrrverandi lífverði Trump til margra ára og í kjölfar þess fór Goudreau með honum á fund með samstarfsmanni Guaídó um aukna öryggisgæslu fyrir stjórnmálamanninn og bandamenn hans.

Heimildarmaður AP segir að Schiller hafi ekki þótt mikið til Goudreau koma á fundinum og að hann hafi slitið öll tengsl við hann.

Goudreau komst þó í samband við Lester Toledo, samstarfsmann Guaídó, og í gegnum hann kynntist Goudreau Cliver Alcalá, fyrrverandi hershöfðingja frá Venesúela og andstæðingi Maduro.

Hershöfðingi sem smyglaði kókaíni

Alcalá var eitt sinn beittur refsiaðgerðum af Bandaríkjunum fyrir að hafa veitt uppreisnarmönnum í Kólumbíu flugskeyti í skiptum fyrir kókaín. Hershöfðinginn fyrrverandi er nú í haldi Bandaríkjamanna og er sakaður um umfangsmikil smygl kókaíns til Bandaríkjanna.

Í fyrra hélt Alcalá fund á hóteli í Kólumbíu þar sem hann og aðrir andstæðingar Maduro lögðu á ráðin. Toledo og Goudreau sóttu þann fund og ræddu lengi við Alcalá.

Nicolas Maduro, forseti Venesúela.AP/Matias Delacroix

Alcalá hafði valið um 300 sjálfboðaliða úr hópi fyrrverandi hermanna sem höfðu flúið frá Venesúela til Kólumbíu. Silvercorp átti að þjálfa þá í þremur leynilegum búðum við landamæri ríkjanna og senda þá til Venesúela. Þar áttu þeir að hefja uppreisn gegn Maduro.

Samkvæmt heimildarmönnum AP fréttaveitunnar sagði Goudreau að hann gæti fengið ríkisstjórn Trump til að styðja uppreisnina, án þess þó að útskýra hvernig.

Toledo og aðrir Guaídó-liðar sem sóttu fundinn, munu hafa slitið öll tengsl við Goudreau og Alcalá í kjölfar fundarins vegna þess að þeir voru sannfærðir um að það sem þeir voru að skipuleggja væri feygðarflan og gæti ekki skilað árangri. 

Goudreau og Alcalá héldu þó áætlunum sínum áfram, um tíma.

Áttu aldrei séns

AP fréttaveitan ræddi við Mattos, fyrrverandi sérsveitarmann, sem fór til umræddra leynibúða, eftir að hann heyrði af þeim frá vini sínum, og reyndi hann að þjálfa sjálboðaliða í grunn-sjúkraliðastörfum. Það gerði hann í gegnum hjálparsamtök sín en hann ferðast um átakasvæði og reynir að þjálfa fólk í að bjarga lífum.

Mattos segir að sjálfboðaliðar Alcalá og Goudreau hafi aldrei átt séns á því að velta Maduro úr sessi. Hann sagði aðstæður í búðunum hafa verið hræðilegar og mennirnir hafi verið vannærðir. Þar að auki hafi þeir þjálfað skotfimi með kústsköftum í stað vopna.

Sjálfboðaliðarnir sögðu Mattos þó að Goudreau, sem Mattos hitti aldrei, hafi sagt þeim að hann myndi tryggja þeim vopn frá Bandaríkjunum og stuðning bandaríska hersins úr lofti.

Þeir sýndu Mattos einnig skjal sem Goudreau hafði skrifað þar sem hann fór yfir þann búnað sem uppreisnin gegn Maduro þyrfti frá Bandaríkjunum. Sá búnaður hefði kostað margar milljónir en Mattos sýndi blaðamönnum AP það.

Hér má sjá myndir af málaliðunum sem voru gómaðir á mánudaginn.

Rannsókn AP leiddi þó ekki í ljós að Goudreau hafi verið í nokkrum samskiptum við embættismenn í ríkisstjórn Trump. Hins vegar vissu margir af því sem Goudreau var að gera og bárust fregnir af því til Bandaríkjanna.

Stærði sig af vinskap sínum við Goudreau

Alcalá mun einnig hafa sagt öllum sem vildu heyra frá áætlunum þeirra og stærði hann sig af vináttu sinni við Goudreau við kólumbíska embættismenn. Hershöfðinginn lýsti Goudreau ítrekaði sem fyrrverandi útsendara CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna.

Fáir vildu þó nokkuð með þá Alcalá og Goudreau hafa.

Skömmu eftir að einn sjálfboðaliðanna var handsamaður í mars við það að reyna að smygla sér inn í Venesúela fór allt um þúfur. Lögreglan í Kólumbíu lagði í kjölfarið hald á búnað og vopn sem áttu að berast til uppreisnarmannanna.

Þar á meðal voru hjálmar sem framleiddir eru í Bandaríkjunum af fyrirtæki sem er í eigu manns sem hafði flust þangað frá Venesúela. Hann svaraði ekki fyrirspurnum AP.

Skömmu seinna gaf Alcalá sig fram í Kólumbíu vegna áðurnefndar ákæru í Bandaríkjunum og sagðist hann eiga búnaðinn og vopnin. Í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum sagði hann uppreisnina hafa verið tilbúna en þeir hafi verið sviknir.

Sjálfboðaliðarnir yfirgáfu leynilegu búðirnar eftir að Alcalá var handtekinn.

Maduro fylgdist náið með

Diosdado Cabello, næst valdamesti maður í Venesúela, heldur því fram að leyniþjónsta landsins hafi vitað af áætlun Alcalá og Goudreau frá upphafi. AP fréttaveitan hefur eftir honum að ríkið hafi meira að segja greitt kostnaðinn fyrir nokkra fundi þeirra

Útsendarar þeirra hafi verið það útbreiddir meðal þeirra sem tóku þátt í uppreisninni sem aldrei varð.

Virðist hafa haldið áfram

Svo virðist þó sem að Goudreau hafi þó ekki alfarið hætt við ætlanir hans og Alcalá.

Snemma á sunnudaginn fóru að berast fregnir af hernaðaraðgerðum undan ströndum Macuto í Venesúela. Um klukkan hálf átta að morgni sunnudagsins ávarpaði Nestor Reverol, innanríkisráðherra Venesúela, þjóðina í sjónvarpi. Hann sagði „hryðjuverka-málaliða“ hafa reynt að gera innrás frá Kólumbíu.

Skömmu eftir það bárust fregnir af því að átta menn hefðu verið skotnir til bana um borð í bát undan ströndum Macuto og tveir handsamaðir. Seinna var ljóst að sex voru skotnir en ekki átta og lögðu yfirvöld hald á vopn og annan búnað.

Til skotbardaga kom á hafi úti.AP/Matias Delacroix

Seinna á sunnudeginum birti miðillinn Factores de Poder myndband á Twitter þar sem Goudreau lýsir yfir ábyrgð á aðgerðunum við Macuto og gefur í skyn að mun fleiri útsendarar hans séu í Venesúela. Annar maður sem var með honum sagði markmiðið að fella stjórn Maduro.

Sami miðill birti svo mynd af samningi Goudreau á að hafa skrifað undir með Guaídó í október í fyrra. Silvercorp átti samkvæmt þessum samningi að fá 212,9 milljónir dala og fyrir að þjálfa sjálfboðaliðana 300. Guaídó hefur þó eins og áður hefur komið fram sagt að hann hafi aldrei skrifað undir samkning við Goudreau. 

Blaðamenn AP hafa ítrekað beðið Goudreau um afrit af samningnum en hafa ekki fengið svör.

Eftir það birti miðillinn einnig undarlegt viðtal við Goudreau þar sem hann segir Guadió ekki hafa greitt sér fyrir þjónustu sína en hann hafi samt ákveðið að reyna að koma Maduro frá völdum.

Hann endaði það viðtal einnig á því að gefa í skyn að mun fleiri útsendarar hans væru að störfum í Venesúela.

Seinna á sunnudagskvöldið birtist tíst á Twittersíðu Silvercorp, sem hefur verið lokað, en í því stóð að 60 fyrrverandi hermenn Venesúela tækju þátt í aðgerðunum og tveir fyrrverandi bandarískir hermenn. Donald Trump, forseti, var taggaður í tístinu.

Framhaldið óljóst

Það er alfarið óljóst hvert framhald málsins verður og hvort Goudreau stjórni fjölmörgum útsendurum í Venesúela eins og hann heldur fram. Sérfræðingar segja þó mjög ólíklegt að hann njóti stuðnings Bandaríkjanna á nokkurn hátt.

„Það er ótrúlegt hve klikkaðir þeir voru,“ sagði Mike Vigil, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðaaðgerða hjá bandarísku fíkniefnalögreglunni, DEA, við AP fréttaveituna. Hann sagði ómögulegt að ríkisstórn Bandaríkjanna hafi stutt þessa aðgerð með nokkrum hætti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×