Fótbolti

Vonast til þess að heila­starf­semi móta­stjóra KSÍ verði rann­sökuð er hann hættir: „Ó­trú­legt verk“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þorkell Máni Pétursson hefur áhuga á að kanna heilastarfsemi Birkis Sveinssonar en Birkir er einn aðalmaðurinn á hverju fótboltasumrinu á eftir öðru.
Þorkell Máni Pétursson hefur áhuga á að kanna heilastarfsemi Birkis Sveinssonar en Birkir er einn aðalmaðurinn á hverju fótboltasumrinu á eftir öðru. vísir/s2s

Þorkell Máni Pétursson, fjölmiðlamaður, vonast eftir því að heilastarfsemi Birkis Sveinssonar, mótastjóra KSÍ, verði rannsakað er hann hættir en Birkir tilkynnti í gær drög að Íslandsmótinu 2020. Spilaðir verða tæplega fimm þúsund leikir á vegum KSÍ í sumar og hefur því verið nóg að gera hjá Birki undanfarnar vikur.

Rikki G fékk þá Þorkel Mána og fyrrum markahrókinn Atla Viðar Björnsson til sín í settið í gær þar sem þeir ræddu byrjun Íslandsmótsins meðal annars en drög að sumrinu voru tilkynnt í gær.

„Mér finnst þetta gleðidagur. Það er verið að sýna okkur að það er dagsetning til að horfa á þetta og fótboltinn fer að rúlla fyrr en síðar. Mér finnst bjart yfir og það er að vora. Þetta er allt að gerast,“ sagði Atli Viðar. Máni var sammála en setti spurningarmerki við mótið.

„Það er frábært að þeir gátu sett upp mótin en það eru alls konar spurningar sem maður spyr sig til dæmis af hverju hefst neðri deildin ekki miklu fyrr? Hún byrjar eftir Pepsi Max-deild karla. Það er enginn að fara mæta á völlinn hvort sem er.“

Ritstjóri Fótbolti.net, Elvar Geir Magnússon, skrifaði í gær pistil og skildi ekkert í því að mótið yrði ekki byrjað fyrr. KSÍ gefur liðunum þrjár vikur til þess að undirbúa sig fyrir mótið.

„Liðin í efstu deildinni þurfa klárlega meiri tíma til þess að undirbúa sig og kannski í fyrstu deildinni. Ég tala ekki fyrir 2. til 4. deildina en ég held að þau væru alveg til í að byrja fyrr. Það verður að hrósa Birki Sveinssyni og ég vona að mótastjóri KSÍ verði rannsakaður þegar hann hættir.“

„Þá á að fara og tékka á hvernig heilastarfsemin í þessum manni virkar að setja upp alla þessa leiki. Ég held að hann sé einn eða þeir séu tveir að setja upp alla þessa leiki. Þetta er alveg ótrúlegt verk og vel unnið. Þeir töluðu að það væri möguleiki ef liðin vildu það.“

Klippa: Sportið í kvöld - Atli Viðar og Máni um byrjun Íslandsmótsins

Sportið í kvöld er á dagskrá Stöðvar 2 Sports á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×