Fótbolti

„Þetta var hamfaratímabil hjá Val í fyrra“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsliðsins.
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsliðsins. Vísir/Bára

Atli Viðar Björnsson, sparkspekingur og fyrrum markahrókur, segir að síðasta tímabil hjá Val í Pepsi Max-deild karla sé best lýst sem hamfaratímabili sem fór í stríð við allt og alla.

Rikki G fékk þá Atla Viðar Björnsson og fjölmiðlamanninn Þorkel Mána Pétursson til að fara yfir stöðuna á íslenska boltanum í vikunni en innan við fimm vikur eru þangað til að boltinn fari að rúlla hér heima.

Valur var á meðal liða sem voru til umræðu.

„Þetta var hamfaratímabil hjá Val í fyrra. Þeir gátu nákvæmlega ekki neitt. Það var allt sem fór úrskeiðis. Þeir voru í stríði við fjölmiðla og Óli var pirraður út í allt og alla. Þetta er tímabil sem Valur þarf að koma til baka,“ sagði Atli VIðar.

„Þeir eru komnir með nýjan mann í brúnna. Heimir Guðjónsson er kominn heim. Við vitum allir hvað hann stendur fyrir en mér finnst stóru gæjarnir, elstu gæjarnir, reyndustu gæjarnir. Þeir skulda. Mér fannst Haukur Páll ekki í fyrra, mér fannst Eiður Aron ekki góður í fyrra, Hannes var þokkalegur.“

Máni segir að það sé pressa á leikmönnum Vals að spila vel í ár því geri liðið ekki gott mót í ár er ljóst að leikmennirnir þurfa að taka ábyrgðina á sig.

„Það sem er gott við Valsara er að það er góður maður sem tekur við. Hann er með reynslu af því að taka við liði af Óla Jó og búa til sigursælt lið. Hann er líka að fá leikmannahóp í hendurnar sem er hungraður í að sanna sig. Ef Valur á slakt tímabil núna þá eru leikmennirnir ekki nægilega góðir. Það segir sig sjálft.“

Umræðuna um Val má sjá hér að neðan.

Klippa: Sportið í kvöld - Umræða um Val

Sportið í kvöld er á dagskrá Stöðvar 2 Sports á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×