Sport

Dagskráin í dag: Alþingismaður mætir til Rikka og velur sitt úrvalslið

Sindri Sverrisson skrifar
Willum Þór Þórsson hefur gert bæði KR og Val að Íslandsmeistara en einnig unnið 1., 2. og 3. deild á sínum þjálfaraferli.
Willum Þór Þórsson hefur gert bæði KR og Val að Íslandsmeistara en einnig unnið 1., 2. og 3. deild á sínum þjálfaraferli. vísir/anton brink

Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Sportið í kvöld er á dagskrá Stöðvar 2 Sports á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Alþingismaðurinn og fótboltaþjálfarinn Willum Þór Þórsson verður gestur Rikka G í Sportinu í kvöld þar sem hann fer yfir farsælan feril sinn og velur meðal annars úrvalslið leikmanna sem hann hefur þjálfað. Á Stöð 2 Sport verður margt annað í boði; leikir úr úrslitakeppni síðasta árs í handboltanum, sígildir leikir úr enska bikarnum og Meistaradeild Evrópu, hestaíþróttir, NBA-þættir og fleira.

Stöð 2 Sport 2

Keppni á PDC Home Tour pílukastsmótaröðinni heldur áfram í kvöld á Stöð 2 Sport 2 og í kjölfarið verður sýnt frá HM í pílukasti frá árinu 2018. Fyrr um daginn verða sýndir bikarúrslitaleikir í fótbolta karla og leikirnir sem tryggðu Selfossi Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í fyrsta sinn.

Stöð 2 Sport 3

Á Stöð 2 Sport 3 verða sýndir úrslitaleikir Meistaradeildar Evrópu í gegnum árin, til að mynda leikur Tottenham og Liverpool frá síðasta ári.

Stöð 2 eSport

Hægt verður að sökkva sér ofan í League of Legends tölvuleikinn á Stöð 2 eSport í dag þar sem sýndir verða leikir úr Vodafone-deildinni í ár. Þar verður einnig sýnt frá úrslitakvöldinu á HM í íslenska leiknum KARDS.

Stöð 2 Golf

Sýndir verða hápunktarnir frá Suður-Afríku mótinu á Evrópumótaröð kvenna þegar Valdís Þóra Jónsdóttir varð í 7. sæti. Einnig verða sýndir þættir um Ryder-bikarinn og Solheim-bikarinn.

Útsendingar dagsins má finna á heimasíðu Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×