Fótbolti

Sara óttast að íþróttir kvenna fari verr út úr faraldrinum - Hefði viljað tvö EM á sama sumri

Sindri Sverrisson skrifar
Sara Björkg Gunnarsdóttir í baráttu við Grace Geyoro í vináttulandsleik gegn Frökkum síðasta haust.
Sara Björkg Gunnarsdóttir í baráttu við Grace Geyoro í vináttulandsleik gegn Frökkum síðasta haust. VÍSIR/GETTY

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, segist óttast að efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins muni hafa meiri og verri áhrif á íþróttir kvenna en karla.

„Já, ég óttast það nefnilega. Flestar tekjurnar koma inn hjá körlunum og þá er auðveldara að fara að leggja niður og gera minna fyrir konurnar. Við verðum bara að sjá hvað kemur út úr því en ég vona alla vega að liðin og klúbbarnir haldi áfram að fjárfesta í kvennaknattspyrnunni,“ sagði Sara í viðtali við Kjartan Atla Kjartansson í Sportinu í dag.

Afleiðingar heimsfaraldursins eru af ýmsum toga og ein afleiðing er sú að lokamótum EM var frestað. EM karla var fært frá 2020 til 2021 og EM kvenna frá 2021 til 2022. Hvað finnst Söru um það og hvernig hentar það íslenska landsliðinu?

„Ég hefði viljað að mótin færu fram á sama tíma. Það hefði verið ótrúlega góð markaðssetning fyrir kvennaknattspyrnuna. Út frá okkur í landsliðinu séð þá erum við nokkrar í eldri kantinum. Maður er ekkert að yngjast. Þetta verður bara að koma í ljós. En ég hefði viljað sjá mótin á sama tíma því það hefði verið flott markaðssetning.“

Klippa: Sportið í dag - Sara vildi að EM karla og kvenna færi fram sama ár

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Lyon verið í sambandi við Söru í tvö ár

Besta knattspyrnulið Evrópu síðustu ár, Lyon, hefur verið í sambandi við landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur síðustu tvö ár. Sara yfirgefur Wolfsburg í sumar og hefur verið sterklega orðuð við Lyon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×