Lífið

„Ekki bara mál feitra kvenna“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Elva Björk Ágústsdóttir sálfræðingur leggur mikla áherslu á mikilvægi líkamsvirðingar.
Elva Björk Ágústsdóttir sálfræðingur leggur mikla áherslu á mikilvægi líkamsvirðingar. Vísir/Vilhelm

„Ég er svo hrædd um að ég megi ekki tala um minn líkama og breytingar á mínum líkama út af því að ég er grönn,“ segir Andrea Eyland þáttastjórnandi Kviknar. Andrea segir að hún hafi stækkað „út í hið óendanlega“ á fimmtu meðgöngunni sinni en var hrædd við að ræða líkamsmynd sína á samfélagsmiðlum sínum Kviknar.

„Ég er komin í svona hóp, ég er grönn og óslitin og þá á ég í rauninni ekki pláss í líkamsvirðingarumræðunni. En það er ekki það að ég er óánægð með líkamann minn, heldur er hann bara rosalega breyttur. Hann er allt öðruvísi en hann var áður en ég gekk með öll börnin mín fimm en sérstaklega núna síðast.“

Andrea ræddi breytingarnar sem gerast á líkama kvenna eftir meðgöngu og fæðingu við sálfræðinginn Elvu Björk Ágústsdóttur sálfræðing í hlaðvarpinu Kviknar. Elva Björk er móðir og hefur nýlega gegnið í gegnum líkamsbreytingarnar sem fylgja þessu ferli, eins og Andrea.

Andrea Eyland þáttastjórnandi Kviknar fjallar um raunina í nýjasta þætti.Kviknar/Þorleifur Kamban

Allar að upplifa eitthvað 

„Slæm líkamsímynd eða að vera óánægður með líkama sinn eða upplifa einhvers konar skrítnar tilfinningar gagnvart líkamanum, einhvers konar áhyggjur eða pirring eða eitthvað slíkt, á sér stað alveg óháð því hvernig við lítum út. Svo hef ég verið að vinna með ungum stúlkum sem eru í áhættu fyrir átröskun eða eitthvað slíkt og ég er að vinna með stúlkur í öllum stærðum og gerðum. Þannig að þetta er ekki bara mál feitra kvenna. Auðvitað eiga allir að eiga rödd þarna, þetta er líka bara svo hugrænt.“

Elva Björk segir að eftir fæðingu séu allar konur að ganga í gegnum það sama, bara í mismiklu mæli. Líkaminn er breyttur og sumar upplifa það jafnvel þannig að líkaminn sé þeim ókunnugur.

„Líkami grannra stelpna breytist alveg eins og líkami feitra stelpna, í sumum tilfellum jafnvel meira en hjá einhverjum sem er feitur. Það er bara allur gangur á þessu. Við erum allar að upplifa eitthvað.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í þættinum Raunin af hlaðvarpinu Kviknar. Viðtalið við Elvu Björk hefst á mínútu 32:06 í þættinum.

Sjálf hefur Elva Björk farið í gegnum mörg ár af slæmri líkamsímynd. Elva Björk rannsakar nú líkamsmynd kvenna eftir fæðingu, ásamt Sólrúnu Ósk Lárusdóttur sem einnig er sálfræðingur og móðir. Þær söfnuðu saman reynslusögum yfir 500 íslenskra kvenna sem eignuðust börn 2019 og 2020.

Elva Björk er með virkilega áhugavert verkefni í gangi á samfélagsmiðlum núna. Hún vildi fylla samfélagsmiðla af líkamsvirðingu og gefur þátttakendum eitt líkamsvirðingarverkefni á dag, sem bæta á líkamsmyndina. Þeir sem vilja taka þátt geta skráð sig í Facebook hópinn Líkamsvirðing – Verkefni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×