Fótbolti

„Hafa verið smá átök innan gæsalappa en við erum ágætir í samskiptum“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Eysteinn Húni Hauksson mynda þjálfarateymi Keflavíkur.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Eysteinn Húni Hauksson mynda þjálfarateymi Keflavíkur. vísir/s2s

Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson eru tveir þjálfarar Inkasso-deildarliðs Keflavíkur í knattspyrnu. Þeir segjast vera góðir í samskiptum og geta unnið þetta vel saman þrátt fyrir að vera tveir aðalþjálfararar.

Kjartan Atli Kjartansson gerði sér ferð til Keflavíkur á dögunum þar sem hann ræddi við þjálfarateymið sem undirbýr sig nú fyrir komandi leiktíð í Inkasso-deildinni þar sem Keflavík er að hefja sitt annað tímabil í röð. En hvor hefur lokaatkvæðið?

„Ég held að við séum ágætir að komast að samkomulagi en það hafa verið smá átök innan gæsalappa en við erum báðir ágætir í samskiptum og höfum náð að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Ég var fljótur þegar ég vissi að Milan Stefán Jankovic yrði ekki með mér og ég vissi að Siggi væri ekki með lið að fá Sigga inn í þetta því ég veit hvað hann stendur fyrir og hvernig hans vinnubrögð eru. Ég vissi að hann myndi hækka „levelið“ hjá okkur á öllum sviðum,“ sagði Eysteinn og hélt áfram:

„Við undirbúum æfingarnar saman og förum yfir allt sem við ætlum að gera. Það er yfirleitt þannig að Siggi er með taktík-hluta æfingarinnar og ég með tæknina auk þess sem hann hefur komið mjög sterkur inn í fitness-hlutann og hefur þar komið inn með nýjar æfingar og vinkla á þann þátt hjá okkur. Við vinnum þetta allt saman en skiptingin er nokkurn veginn svona.“

„Við höfum skipt þessu bróðurlegu á milli okkar og höfum reynt að nýta styrkleika hvors annars. Ég held að það sé mikilvægt í samstarfi og erum með gott teymi með okkur í Ómari markmannsþjálfara og Jói Guðmunds kemur að þessu líka. Þetta er mjög öflugt teymi,“ sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×