Viðskipti innlent

Krónan standi ansi sterk

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Rannveig Sigurðardóttir og Ásgeir Jónsson kynntu vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands í morgun.
Rannveig Sigurðardóttir og Ásgeir Jónsson kynntu vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands í morgun. Vísir/Vilhelm

Seðlabankastjóri hefur ekki áhyggjur af stöðu krónunnar á þeim óvissutímum sem uppi eru vegna áhrifa kórónuveirunnar á efnahagslífið. Hagkerfið hafi aldrei verið eins vel í stakk búið til að bregðast við áföllum. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti ákvörðun sína um að lækka meginvexti bankans um 0,50 prósentur í morgun, viku fyrr en áætlað var. Þá var jafnframt ákveðið að lækka meðaltalsbindiskyldu úr 1% niður í 0%.

Sjá einnig: Heimilin sjái lægri vexti og fleiri haldi vinnunni

„Við erum að losa um 40 milljarða fyrir bankana sem er þá í rauninni lausafé sem að þeir geta nýtt sér til að þjónusta sína viðskiptavini,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Hann kveðst ekki hafa teljandi áhyggjur af stöðu krónunnar. „Krónan hefur í rauninni staðist þessa árun mjög vel, við vorum með gríðarlegan viðskiptaafgang á síðasta ári, ég held að við höfum slegið einhver met í viðskiptaafgangi og það eru náttúrlega aðrir þættir sem eru að koma með henni, lægra olíuverð og lægri innflutningur þannig að við teljum að krónan standi ansi sterk,“ segir Ásgeir.

Þá búi Seðlabankinn yfir 800 milljarða gjaldeyrisforða sem hægt sé að grípa til ef á þarf að halda. Staða ferðaþjónustunnar á þessum óvissutímum sé aftur á móti áhyggjuefni. „Ég held ég sé ekki að fara að deila með þér minni verstu sviðsmynd. Við erum að sjá verulega truflun í ferðaþjónustunni, ferðaþjónustan hefur á síðustu árum risið upp sem ein helsta útflutningsgrein landsins og verður það áfram. Þetta er í rauninni bara tímabundið áfall,“ segir Ásgeir.

Heilt yfir sé staðan góð til að bregðast við áföllum. „Við höfum aldrei verið eins vel undirbúin eins og núna.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×