Sport

Dagskráin í dag: Höddi gerir EM-árið upp með Heimi, síðustu Evrópuleikir Ferguson og úrslitakeppni kvenna í körfu

Sindri Sverrisson skrifar
Heimir Hallgrímsson hafði oft ríka ástæðu til að fagna sem landsliðsþjálfari Íslands, ekki síst á EM 2016.
Heimir Hallgrímsson hafði oft ríka ástæðu til að fagna sem landsliðsþjálfari Íslands, ekki síst á EM 2016. VÍSIR/GETTY

Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Eftir þátt þeirra Henrys Birgis og Kjartans Atla verður á Stöð 2 Sport í dag meðal annars hægt að rifja upp síðustu úrslitaleiki enska deildabikarsins í fótbolta, þegar Manchester City mætti annars vegar Aston Villa 2020 og hins vegar Liverpool 2019, eftirminnilegan bikarleik Arsenal og Tottenham frá árinu 2001, og ítarlegt viðtal Harðar Magnússonar við Heimi Hallgrímsson eftir hið ógleymanlega EM-ár 2016.

Stöð 2 Sport 2

Úrslitakeppnin í Domino‘s-deild kvenna verður alls ráðandi á Stöð 2 Sport 2 í dag. Sýnt verður frá fjórum síðustu úrslitakeppnum í allan dag.

Stöð 2 Sport 3

Á Stöð 2 Sport 3 verða sýndir eftirminnilegir leikir úr Meistaradeild Evrópu í fótbolta, meðal annars úrslitaleikur Tottenham og Liverpool í fyrra og síðustu Evrópuleikir Manchester United undir stjórn sir Alex Ferguson, gegn Real Madrid árið 2013.

Stöð 2 eSport

Sýnt verður frá fyrsta Íslandsmeistaramótinu í e-fótbolta, eða FIFA 20 tölvuleiknum á Stöð 2 eSport í dag. Auk þess verður sýnt frá keppni í League of Legends í Vodafone-deildinni og fleira til.

Stöð 2 Golf

Á Stöð 2 Golf verður hægt að rifja upp lokadaginn á Masters mótinu árið 2016 sem og árið 2015, og sjá þætti frá PGA og LET-mótaröðunum.

Útsendingar dagsins má finna á heimasíðu Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×