Bílar

Leclerc brunar á Ferrari SF90 í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Leclerc fagnar.
Leclerc fagnar. vísir/getty

Ferrari ökumaðurinn Charles Leclerc ók hinum glænýja Ferrari SF90 Stradale hybrid á götum Mónakó á dögunum. Ástæðan var endurgerð stuttmyndarinnar C’était un rendez-vous frá 1976.

Við tökurnar ók Leclerc Ferrari SF 90 Stradale hybrid, sem er 986 hestafla V8 tvinnbíll með tvær forþjöppur. Þokkalegt afl. Myndin er væntanleg í júní.

Verkefnið er unnið í samvinnu við upprunalegan leikstjóra hinnar umdeildu myndar, Claude Lelouch. Hafi lesendur ekki séð upprunalegu myndina má finna hana hér að neðan.

Hún gerist eldsnemma á sunnudagsmorgni í ágúst 1976. Franski kvikmyndagerðarmaðurinn Claude Lelouch festi myndavél framan á Mercedens-Benz 450SEL, með 6,9 lítra vél. Hann ók svo af stað á ógnarhraða í gegnum París. Hann sagði einungis tveimur einstaklingum frá fyrirætlan sinni, kærustunni sinni sem hann hitti á hápunkti myndarinnar og aðstoðarmanni sem var með talstöð til að vara við á blindhornum.

Ekkert sést í bílinn í myndinni en Lelouch setti yfir myndina hljóð úr sínum eigin Ferrari 275GTB með V12 vél. Lelouch náði um 200 km/klst. í París þar sem engar götur voru lokaðar. Eins fór Lelouch yfir nokkur rauð ljós. Þrátt fyrir að ekki sjáist í bíl í myndinni tengdi fólk hana strax við Ferrari hljóðsins vegna, slíkt hefur leitt til þeirrar endurgerðar sem Leclerc tekur þátt í að gera sem Ferrari ökumaður.

Myndin vakti því afar mikla athygli þegar hún birtist fyrst. Hún féll alls ekki í kramið hjá mörgum sem fannst uppátækið afar vafasamt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×