Sport

Gunnar hélt að hann væri 83 kíló en steig á vigtina og var átta kílóum þyngri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Nelson í settinu í gær.
Nelson í settinu í gær. vísir/s2s

Bardagakappinn Gunnar Nelson segir að hann hafi þyngst á tímum kórónuveirunnar en bardagakappinn eignaðist einnig sitt annað barn á dögunum.

Gunnar var gestur hjá þeim Henry Birgi og Kjartani Atla í Sportinu í dag þar sem hann fór um víðan völl. Hann segist hafa borðað vel eftir að barn númer tvö kom í heiminn.

„Ég hef borðað aðeins betur núna heldur en ég hef gert. Ég held reyndar að það séu lyftingarnar sem hafa ýtt mér aðeins upp. Ég er kominn upp í einhver 90 kíló,“ sagði Gunnar.

„Ég fór þyngst upp í 92 kíló fyrir stuttu. Ég þyngdist eftir bardagann og við eignuðumst barnið. Ég fitnaði aðeins og það var kominn smá selur. Ekkert alvarlegt en einhver þrjú til fjögur kíló eins og gengur og gerist.“

Gunnar segir að fyrir næsta bardaga sem hann keppir verði hann væntanlega rúmum tveimur kílóum þyngri en hann hafi verið áður vegna vöðvamassa sem hann hefur bætt á sig. Hann fékk þó áfall þegar hann steig á vigtina.

„Síðan byrja ég að æfa á fullu og er búinn að vera að því síðustu mánuði. Þá er maður helst búinn að vera að lyfta og þá er ég kominn aftur í form og er orðinn sáttur og grennast aftur. Síðan ákvað ég að stíga á vigtina og hélt ég væri kominn niður í 83 kíló en þá er ég 91 kíló.“

„Mér finnst þetta rosalega spennandi að vera rúmlega 90 kíló og tveggja barna faðir. Ég er kominn niður fyrir 90 núna eftir að við byrjuðum að glíma. Þegar maður byrjar að djöflast þá fer maður niður.“

Klippa: Sportið í dag - Gunnar Nelson er búinn að þyngjast

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×