Íslenski boltinn

Setji ósætti vegna launamála til hliðar og nýti reynsluna til að eflast

Sindri Sverrisson skrifar
Skagamenn taka á móti KA í langþráðum fyrsta leik sínum í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Skagamenn taka á móti KA í langþráðum fyrsta leik sínum í Pepsi Max-deildinni í sumar. VÍSIR/BÁRA

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA er vongóður um að óánægja í leikmannahópnum með launalækkanir vegna kórónuveirukrísunnar hafi ekki slæm áhrif á spilamennsku liðsins í sumar.

Fram kom á Vísi í byrjun apríl að kurr væri í leikmannahópi ÍA eftir að laun voru lækkuð um helming án sérstaks samráðs við hópinn.

„Þetta er alltaf erfitt staða, eins og var hjá öllum félögum, að menn gátu ekki alveg staðið við gerða samninga. En mennirnir sem hafa verið að vinna þá vinnu eru að reyna eftir bestu geta að leysa það á farsælan hátt. Ég er nokkuð viss um að það muni takast, menn verði sáttir og að þegar við spilum okkar fyrsta leik í deildinni verði fókusinn á það,“ sagði Jóhannes Karl við Henry Birgi Gunnarsson í Sportinu í dag.

„Ég hef enga trú á öðru en að menn verði virkilega vel mótíveraðir í það núna þegar mótið byrjar að fara að spila fótbolta, og setji aðra hluti til hliðar. Að þeir séu bara spenntir að fara að byrja,“ sagði Jóhannes Karl en Skagamenn fá KA í heimsókn í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar sunnudaginn 14. júní.

Mórallinn í hópnum frábær

Aðspurður hvernig mórallinn í hópnum hefði verið og væri núna sagði þjálfarinn hann frábæran, og að raunir vorsins gætu orðið til að efla leikmennina sjálfa og liðið í heild:

„Mórallinn í hópnum er alveg frábær. Þetta eru góðir strákar og skemmtilegir að vinna með. Það hefur aldrei verið neitt vesen. Auðvitað var erfitt þegar við máttum ekki æfa saman [vegna samkomubanns] en við skoðuðum það virkilega vel í hvernig ástandi leikmenn voru þegar þeir komu til baka. Þeir sýndu fram á það með sínum æfingum, og það sem þeir lögðu í þetta á erfiðasta tímanum, fjárhagslega og æfingalega séð, að þeir eru virkilega tilbúnir í þetta verkefni. Auðvitað hafa svona atriði áhrif, en það er líka á svona stundum sem að menn mótast. Ungir strákar þurfa kannski að verða pínu fullorðnir. Ég held að við getum nýtt þessa reynslu til að efla okkur, bæði sem einstaklingar sem þurfa að höndla mótlætið og sem hópur sem mun þrýsta sér saman og verða enn samstilltari og viljugri til að fórna sér fyrir hvern annan og félagið sem við spilum fyrir.“

Klippa: Sportið í dag - Jói Kalli um móralinn í Skagaliðinu

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×