Bílar

Fernando Alonso prófar nýjan Toyota Hilux

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fernando Alonso og nýr uppfærður Toyota Hilux.
Fernando Alonso og nýr uppfærður Toyota Hilux.

Toyota er að undirbúa kynningu á uppfærðu útliti Hilux pallbílsins. Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 ók nýja bílnum utan vegar á dögunum.

Undir felulitunum sem bíllinn er í má sjá að frískað hefur verið upp á útlitið. Til að mynda eru framljósin orðin grennri og meira í takt við RAV4 og nýjan Yaris.

Helsta breytingin er viðbót í vélaframboðið. Ný 2,8 lítra dísel vél sem líklega mun skila meira afli og eyða minna en fjögurra strokka 2,4 lítra vélin sem er í Hilux nú þegar.

Þá mun fjöðrunin fá yfirhalningu og segir í tilkynningu frá Toyota að hún muni áfram styðja við „orðspor um heimsklassa þegar kemur að gæðum, endingu og áreiðanleika“.

Alonso ók prufubílnum við kynningu á Gazoo Racing liðinu fyrir Dakar rallið í ár. Það er því nokkuð síðan han ók bílnum, sennilega á haustmánuðum 2019.

Hér að neðan má sjá myndband af byltu sem Alonso fór í Dakar rallinu í ár.

„Hilux er ákveðin táknmynd og ég hef alltaf verið aðdáandi. Það var gott að prófa nýja bílinn í umhverfi sem felur í sér áskoranir og reyna á þolmörk hans. Nýja vélin er góð og fjöðrunin skila sínu. Jafnvel þegar á reynir þá er samt þægilegt að aka bílnum,“ sagði Alonso við tilefnið.

Gazoo Racing liðið fyrir Dakar rallið 2020

Gazoo Racing er sífellt að taka meiri og meiri þátt í þróun nýrra gerða af Toyota. Harðkjarna útgáfan af nýja Yaris-num, GR og ný Supra eru fyrstu tvær gerðirnar sem Gazoo Racing kemur að. Nú bætis Hilux-inn við. Það verður spennandi að sjá hvað Gazoo Racing og Toyota þróa saman næst.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×