Bílar

Myndband: Tesla Model 3 ekur á oltinn flutningabíl

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Tesla Model 3 inn í flutningabílnum.
Tesla Model 3 inn í flutningabílnum.

Myndband náðist af Tesla Model 3, líklegast á sjálfstýringu, aka á mikilli ferð á flutningabíl sem oltið hafði á hraðbraut í Taívan. Sjálfvirka bremsukerfið virkaði ekki en ökumaðurinn reyndi að hemla á síðustu stundu en náði ekki að forða árekstri.

Enginn slys urðu á fólki við áreksturinn. Hinn 53 ára Huang var undir stýri og segir bílinn hafa verið á sjálfstýringu og hafa verið á um 110 km/klst þegar áreksturinn varð.

Þegar hann sá flutningabílinn steig hann á bremsuna að eigin sögn, en þá var orðið of seint að stöðva bílinn og forða árekstri. Engir loftpúðar virðast hafa sprungið út í bílnum við áreksturin.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tesla mistekst að stöðva í tæka tíð þegar kyrrstæð ökutæki verða í vegi Tesla. Svo virðist sem sjálfstýringin sé haldin einhverjum ágöllum þegar kemur að því að greina kyrrstæða hluti. Bíllinn hefði klárlega átt að stöðva sjálfur í þessum aðstæðum sem ættu að vera afar einfaldar fyrir kerfið að greina.

Hér að neðan má sjá tíst um atvikið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×