Bílar

Glefsur úr Gran Turismo 7 sáust í kynningu á Playstation 5

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Leikurinn virðist afar raunverulegur.
Leikurinn virðist afar raunverulegur.

Tíðindin sem gleðja margt bílaáhugafólk og sérstaklega bílaáhugafólk sem spilar tölvuleiki. Gran Turismo 7 er væntanlegur.

Raftækjaframleiðandinn Sony var að kynna Playstation 5 og nýtti tækifærið til að sýna glefsur úr Gran Turismo 7.

Kazunori Yamauchi, yfirmaður Polyphony Digital, sem framleiðir Gran Turismo hafði ekki mikið að sýna. Hann lofaði þó góðri skemmtun.

Bílarnir líta afar vel út og greinilegt að mikill fjöldi bíla verður í boði. Í þessu stutta myndbandi sem er hér að ofan má sjá sígilda ameríska bíla, GT-3 kappakstursbíla og gamaldags Le Mans sólarhringskappakstursbíla.

Myndbandið sýnir einnig viðmót leiksins, sem minnir á fyrirrennarana. Leikurinn lítur vel út en í myndbandinu er lögð áhersla á að leikurinn bjóði upp á marga bíla og margar brautir. Það ber lítið nýtt á góma í myndbandinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×