Skuggahliðar stjórnenda oft erfitt skap, þeir fara í fýlu og „frysta“ fólk til hlýðni Rakel Sveinsdóttir skrifar 16. júní 2020 10:00 Gestur Pálmason markþjálfi hjá Complete. Vísir/Vilhelm
Gestur Pálmason markþjálfi hjá Complete segir að ósjálfbær stjórnunarstíll sé sá stjórnunarstíll þar sem yfirmenn verja meiri tíma í sínum skuggahliðum fremur en þeim góðu. Að hans sögn eru einkenni þessara einstaklinga oft þau að þetta eru yfirmenn sem eiga erfitt með að stýra eigin tilfinningum, finnst framgangur starfsfólks almennt of hægur og líta á sjálfan sig sem ómissandi. Gestur segir þetta oft yfirmennina sem eru gjarnir á að hækka róminn og vilja almennt ekki fá önnur sjónarhorn á málefni en sín eigin. „Í þessum aðstæðum liggja töpuð tækifæri fyrir alla aðila,“ segir Gestur. Að sögn Gests er staðan í dag sú að stjórnendur eru almennt opnari fyrir því en áður að leita sér aðstoðar. Of oft sé það þó þannig að til hans leiti fólk sem lýsir yfirmanni sínum þannig að með auðveldri greiningu sé hægt að heyra að tiltekinn stjórnandi þyrfti helst að leita sér aðstoðar sjálfur. En hvað einkennir stjórnendur sem ættu mögulega að leita sér aðstoðar? Gestur segir stjórnendur geta spurt sjálfan sig eftirfarandi spurninga: Skipti ég oft skapi við samstarfsfólk, stýri með fýlu eða með því að „frysta“ fólk til hlýðni? Treysti ég samstarfsfólkinu mínu? Gengur ekkert þegar ég er ekki á staðnum, er ég alltaf að draga vagninn og hinir eru aldrei nógu hraðir eða kraftmiklir? Legg ég nótt við dag en finnst ég ekkert komast áfram? Liggur allt ákvarðanavald hjá mér? Ef svarið við einhverjum af þessum spurningum er já væri snjallt að hringja í vin,“ segir Gestur. Gestur segir ósjálfbæran stjórnunarstíl vera eitthvað sem hægt sé að breyta þannig að styrkleikar viðkomandi stjórnanda nýtist betur og skuggahliðar víki.Vísir/Vilhelm Gildakerfi stjórnenda Gestur segir eðlilegt að stjórnunarstíllinn okkar sé jafn misjafn og við erum mörg en það liggi í hlutarins eðli að það fólk sem starfar í stjórnunarstöðum er fólk sem er ráðið í starf til að leiða hóp fólks að einhverju markmiði. „Það hvernig við gerum það veltur að miklu leiti á gildakerfinu okkar því þegar við erum undir álagi tökum við ákvarðanir út frá því sem hefur virði fyrir okkur,“ segir Gestur. Það gildakerfi sem Gestur nefnir hér er gildakerfi stjórnenda sem hefur verið rannsakað nokkuð vel og skiptist í átta flokka. „Í starfi mínu sem stjórnendaþjálfari hjá Complete er yfirleitt það fyrsta sem ég geri að greina gildakerfi stjórnenda og við eigum öflugan gagnagrunn með upplýsingum um ríkjandi gildakerfi stjórnenda í alþjóðlegu viðskiptalífi,“ segir Gestur og lýsir ósjálfbærum stjórnunarstíl sem þeim stjórnunarstíl þar sem skuggahliðar stjórnandans eru ráðandi. „Jákvæð einkenni ríkjandi gildakerfa þar, eru heillandi einstaklingar sem geta hrifið fólk með sér og búa yfir miklum krafti, bæði í orku og sannfæringarkrafti. Þetta er fólkið sem rífur hlutina í gang, leiðir að framan og togar fólk með sér. Skuggahliðinn á þessum einstaklingum er að þeir eru gjarnan drifnir áfram af því að ná árangri fyrir sjálfa sig og sjá ekki að með því að vinna með fólki eða stilla upp kerfum komist þeir lengra en á eigin atorku en það getur tekið tíma og því geta þeir orðið óþolinmóðir. Ef stjórnendur verja meiri tíma í skuggahliðunum hefur það veruleg áhrif á samband þeirra við samstarfsfólk, sérstaklega ef það samstarfsfólk er komið lengra á þroskabrautinni, og orsakað alls kyns núning og hamlað árangri. Í því felst ósjálfbærnin,“ segir Gestur. En hvernig gæti markþjálfun hjálpað viðkomandi? Það sem þú þarft að vita er að þetta þarf ekki að vera svona og það eru heilmiklir möguleikar handan þess hvernig þú sérð heiminn núna,“ segir Gestur og bætir við „Sú breyting á sér fyrst og fremst stað innra með þér og í slíkum ferðalögum er oft betra að vera með góðan ferðafélaga ef maður skyldi villast af leið. Þar getur markþjálfinn komið sér vel.“
Stjórnun Góðu ráðin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öfund í vinnu og afbrýðisamir vinnufélagar Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu Sex einkenni um að þú sért í miðaldrakrísu í vinnunni Plankavinir, kaka fyrir vinnufélaga, leika sér með börnum og hafa gaman Spennuþrungin sigling Mottumarssokkana til Íslands dæmi um hvað margt getur komið upp „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Fögnum fjölbreytileikanum: Pólverjar flestir, síðan Litháar, síðan Íslendingar Eiga ekki bara að vera Íslendingar í betur launuðu störfunum „Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“ Nú er hægt að kúra og slappa af á morgnana „Karlarnir segja konur of reynslulausar“ Eðlilegt að starfsmenn og stjórnendur skipti um vinnu reglulega „Stjórnendur átta sig ekki alltaf á því að starfslýsing er ekki nóg“ „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ „Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag“ Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“ Sýnileikadagur FKA: Erfiðast að rukka! Sýnileikadagur FKA: „Mikið er hún góð þessi!“ Selja í milljónavís: „Leit vel út en var eins og leðja, dísæt og beisk“ Tímabilið þegar allir fóru í tíu ljósatíma fyrir fermingu Tilfinningin „að langa ekki til að fara í vinnuna“ Besti vinnustaðurinn '23: Enginn er yfirmaður eða undirmaður Besti vinnustaðurinn fyrir konur '24: Viljum upphefja ræstingastarfið Góð ráð: Í atvinnuleit eftir fimmtugt „Fyrst langar mig til að rota mig, taka inn eitur eða bara eitthvað“ Undirbúningur fyrir ræðuhöld eða kynningu Forstjóri Isavia: „Ein af mínum glímum er forðunarhegðun“ „Þar eru leiðtogar sem virðast hafa eitthvað extra“ Sjá meira