Lífið samstarf

Gjafaleikur:  Smelltu af þér mynd með Matarbíl Evu

Stöð 2
Smelltu af þér mynd með Matarbíl Evu og merktu hana #matarbillevu á samfélagsmiðlum. 
Smelltu af þér mynd með Matarbíl Evu og merktu hana #matarbillevu á samfélagsmiðlum. 

Eva Laufey er nú á ferðinni um landið á Matarbílnum og kynnir sér nýsköpun í matargerð. Á hverjum stað útbýr Eva Laufey eitthvað girnilegt úr hráefni úr héraði og blæs til veislu. Nú er í gangi stórskemmtilegur gjafaleikur með samstarfsaðilum Stöðvar 2.

Taktu mynd af þér með Matarbíl Evu og merktu myndina með myllumerkinu #matarbillevu á samfélagsmiðlum og þú kemst í pottinn.

Frábærir vinningar í boði

Geosea Sjóböðin Húsavík gefa fjölskyldugjafabréf sem veitir aðgang að böðunum fyrir fjóra. North Sailing Hvalaskoðun á Húsavík gefur fjölskyldugjafabréf og Hagkaup gefur gjafakörfur, Mjólkursamsalan gefur gjafakörfur, ZO•ON Iceland gefur gjafabréf og þá gefa Pottagaldrar ehf gjafabréf, Hey Iceland gefur gistingu og Brauð&co gefur brunchveislur, Glacier Lagoon - Jökulsárlón gefur zodiac ferð fyrir fjóra og hjólabátaferð fyrir fjóra.

Hvar er bíllinn?

Fylgjast má með ferðum Matarbíls Evu á instagram Stöðvar 2 en í dag, 16 júní er Matarbíllinn á ferðinni á Höfn í Hornafirði.

Þann 17. júní verður bíllinn á Egilsstöðum.

þann 19. Júní verður bíllinn á ferðinni á Húsavík.

Dregið verður úr pottinum laugardaginn 20. Júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×