Innlent

Hafró leggur til minni veiði á helstu stofnum

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Sæmundsson rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar.
Bjarni Sæmundsson rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar. Vísir/Vilhelm

Hafrannsóknarstofnun leggur til minni veiði á helstu nytjastofnum á næsta fiskveiðiári. Töluverður niðurskurður er í ráðgjöf um veiðar á þorski, gullkarfa og hlýra en aukning í ýsu og síld.

Hafrannsóknarstofnun leggur til sex prósenta skerðingu á þorskveiðum á næsta fiskveiðiári miðað við yfirstandandi fiskveiðiár.Vísir/Vilhelm

Hafrannsóknastofnun leggur til að heimilt verði að veiða sex prósentum minna af þorski á næsta fiskveiðiári eða rúm 256 þúsund tonn í stað rúmlega 272 þúsund tonna á yfirstandandi fiskveiðiári.

Hins vegar leggur stofnunin til níu prósenta aukningu í heimildum til ýsuveiða þannig að veiða megi tæplega fjörtíu og fimm þúsund og fjögur hundruð tonn. En gert sé ráð fyrir að veiðistofn ýsu stækki á næstu tveimur árum. Þá leggur Hafró til tveggja prósenta minni veiði á ufsa, eða um sjötíu og átta þúsund og og sex hundruð tonn.

Árgangar gullkarfa hefur verið með lakasta móti allt frá árinu 2009 að sögn vísindamanna Hafrannsóknarstofnunar og þar af leiðandi hafi hrygningarstofninn minnkað á undanförnum árum. Lagt er til að veiðin á næsta fiskveiðiári sem hefst í ágúst verði níu prósentum minni en í ár eða rúmlega þrjátíu og átta þúsund og þrjú hundruð tonn. Hins vegar leggur stofnunin til aukningu á veiðiheimildum grálúðu um tíu prósent og veidd verði allt að 23.530 tonn.

Stofn sumargotssíldarinnar hefur minnkað um 60 prósent á undanförnum áratug en nú eru horfur á að stofninn sé að jafna sig.Vísir/Vilhelm

Stofn íslensku sumargotssíldarinnar hefur minnkað ört á undanförnum árum vegna slakrar nýliðunar og frumdýrasýkingar í stofninum. Þannig hafi stofninn minnkað um nær 60% á undanförnum áratug. Engu að síður leggur Hafró til þriggja prósenta aukningu í veiðiheimildum á síldinni og veidd verði allt að þrjátíu og fimm þúsund og fimm hundruð tonn, enda fari nýliðun batnandi.

Ástand hlýrastofnsins er alvarlegt að sögn Hafró sem leiggur aðeins til veiðar á rúmum þrjú hundruð tonnum og að heimilt verði að sleppa hlýra umfram veiðiheimildir. Þá hafi stofn keilu verið verulega ofmetinn síðustu ár og því leggur Hafró til umfangsmikla lækkun veiðiheimilda, eða um 41% frá fyrra ári.


Tengdar fréttir

Veiði­eftir­lit Fiski­stofu - þróun og mikil­vægi

Hlutverk Fiskistofu er að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálbæra nýtingu auðlinda hafs og vatna. Mikilvægur hlekkur í keðju heilbrigðs fiskveiðistjórnunarkerfis er virkt og árangursríkt eftirlit og er sá þáttur tilefni þessarar greinar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×