Handbolti

Stærsti styrktar­­aðili Ki­elce hættir að styrkja liðið og fé­lagið hefur söfnun til þess að halda leik­mönnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur og Sigvaldi áttu að spila með Kielce á næstu leiktíð en nú er spurning um þeirra framtíð.
Haukur og Sigvaldi áttu að spila með Kielce á næstu leiktíð en nú er spurning um þeirra framtíð. vísir/bára/getty

Stærsta handboltalið Póllands, Kielce, er í miklum fjárhagsvandræðum eftir að stærsti styrktaraðili liðsins, VIVE, dró sig út úr félaginu frá og með 1. júlí næstkomandi.

Þetta var tilkynnt í gær en tveir íslenskir landsliðsmenn sömdu við liðið fyrr á þessu á og gengu í raðir liðsins nú í sumar. Það eru þeir Sigvaldi Guðjónsson og Haukur Þrastarson.

Félagið berst nú í bökkum að reyna ná í þá peninga sem til þarf að halda leikmönnum liðsins en VIVE segir að þeir gætu komið inn í framtíðinni og hjálpað félaginu á nýjan leik en þetta sé búið að sinni.

Pólska liðið hefur brugðið á það ráð að stofna söfnun á netinu en félagið ætlar þar að reyna safna 560 þúsund evrum eða 2,5 milljónum zloty. Það er sá peningur sem þeir þurfa til þess að halda leikmönnunum fyrir næstu leiktíð.

Kielce er komið í Final Four helgi Meistaradeildarinnar sem fer fram í desember en Talant Dujshebaev, þjálfari liðsins, sagði í viðtali að sumir leikmenn liðsins hefðu tekið á sig launalækkun á meðan aðrir munu væntanlega yfirgefa félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×