Fótbolti

Stéttaskipting í frægu hvítu afmælisveislunni hjá Neymar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eins og sjá má á þessari mynd af Instagram síðu Neymar þá var greinilega mikið fjör í afmælisveislunni og allir að sjálfsögðu klæddir í hvítt.
Eins og sjá má á þessari mynd af Instagram síðu Neymar þá var greinilega mikið fjör í afmælisveislunni og allir að sjálfsögðu klæddir í hvítt. Mynd/Instagram

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er mikill glaumgosi og á góðri leið með að verða þekktari fyrir að skemmta sér utan vallar en að skemmta knattspyrnuáhugafólki innan vallar.

Neymar er ennþá dýrasti knattspyrnumaður heims og leikmaður franska Paris Saint Germain þótt hann vilji sjálfur ólmur komast aftur til Barcelona.

Neymar er mjög hæfileikaríkur leikmaður en hefur að flestra mati ekki nýtt þá hæfileika til fulls. Leikaraskapur og veisluhöld eru tvö dæmi um það sem hefur verið að trufla hann. Kannski eru látlaus meiðsli hans síðustu ár bara óheppni þó sumir vilji halda öðru fram.

Spánverjinn Ander Herrera er nú liðsfélagi Neymar hjá Paris Saint Germain eftir að hafa komið þangað frá Manchester United.

Ander Herrera var líka einn af þeim sem var boðið í 28 ára afmælisveislu Neymar fyrr í vetur. Neymar varð 28 ára gamall 5. febrúar síðastliðinn en á sama tíma var hann óleikfær vegna rifbeinsmeiðsla.

Neymar bauð í svaka veislu í tilefni afmælisins sínu og það voru nokkrar reglur. Í fyrsta lagi þá urðu allir gestir að mæta í hvítu en það var líka önnur regla sem Ander Herrera sagði frá nýlega.

Þeir sem voru í sambandi máttu nefnilega ekki skemmta sér á sama stað og þeir sem voru einhleypir. Pörin voru uppi í íbúðinni en þeir einhleypu fengu bara að vera niðri. Það þarf ekki segja meira um það hvort Neymar er í sambandi eða ekki.

View this post on Instagram

Fui feliz, atura ou surta 28

A post shared by ene10ta Érre neymarjr (@neymarjr) on

Þegar Ander Herrera var spurður um hvað hafi gerst í afmælisveislunni þá svaraði hann: „Hvað gerðist ekki?“

„Sannleikurinn er sá að þegar hann gerir eitthvað þá gerir hann það til þess að skemmta sér. Hann skipulagði veisluna til þess að hafa gaman. Ég hrósaði honum fyrir það,“ sagði Ander Herrera og umrædd stéttaskipting hafði áhrif á kvöld Spánverjans sem fékk ekki að vera með í aðalfjörinu.

„Auðvitað leyfði eiginkonan mér hvorki að fara á klósettið eða fara niður til þeirra,“ sagði Ander Herrera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×