Sport

Tvöfaldur sigur Jakobs í Meistaradeildinni

Sindri Sverrisson skrifar
Jakob Svavar Sigurðsson með verðlaunin sín.
Jakob Svavar Sigurðsson með verðlaunin sín. mynd/meistaradeild.is

Annað árið í röð stóð Jakob Svavar Sigurðsson uppi sem sigurvegari Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum en hann vann öruggan sigur. Lið hans, Hjarðartún, vann liðakeppnina.

Keppnistímabilið dróst á langinn vegna kórónuveirufaraldursins en því lauk í gærkvöld á mótssvæði Sleipnis á Selfossi, með keppni í tölti og 100 m flugskeiði.

Jakob var með nokkuð örugga forystu fyrir lokakvöldið, náði að halda henni og er því Meistarinn 2020. Hann hlaut 48,5 stig en næstur kom Viðar Ingólfsson með 35 stig og í 3. sæti varð Konráð Valur Sveinsson með 28 stig sem hann safnaði reyndar einungis í skeiðgreinum.

Fjórgangur: 1.sæti – Hálfmáni frá Steinsholti

Slaktaumatölt: 5.sæti – Vallarsól frá Völlum

Fimmgangur: 1.sæti – Skýr frá Skálakoti

Gæðingafimi: 4.sæti – Hálfmáni frá Steinsholti

Gæðingaskeið: 10.sæti – Nökkvi frá Syðra-Skörðugili

Flugskeið: 6.sæti – Jarl frá Kílhrauni

Tölt: 4.-5.sæti – Hálfmáni frá Steinsholti

Jakob var auk þess í liði Hjarðartúns sem sigraði liðakeppni Meistaradeildarinnar. Hjarðartún safnaði 377 stig og var með forystuna allt tímabilið. Liðið hlaut liðaplattann í fjórgangi (deildi honum með liði Eques/Kingsland), fimmgangi og 150 m skeiði.

Hjarðartún vann liðakeppnina.mynd/meistaradeild.is

Auk Jakobs voru í liðinu þau Helga Una Björnsdóttir (liðsstjóri), Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson og Þórarinn Ragnarsson. Í 2. sæti varð lið Hrímnis/Export með 317,5 stig og í 3. sæti Hestvit/Árbakki með 311,5 stig.

Heildarniðurstöður úr einstaklings- og liðakeppninni.

Sigursteinn og Viðar unnu lokagreinarnar

Sigursteinn Sumarliðason vann flugskeiðið í gær á Krókusi frá Dalbæ en þeir fóru 100 metrana á 7,37 sekúndum, 7/100 úr sekúndu hraðar en Jóhann Magnússon á Fröken frá Bessastöðum. Allir knapar klæddust bleikum bol til stuðnings Eddu Rúnar Ragnarsdóttur en stofnaður hefur verið styrktarsjóður henni og fjölskyldu hennar til stuðnings, en hún lenti í slysi þegar hún féll af hestbaki í byrjun maí.

Viðar náði að saxa á Jakob í heildarkeppninni með því að vinna töltið af öryggi, á Maístjörnu frá Árbæjarhjáleigu II. Fengu þeir 8,83 í einkunn. Næstur kom Siguroddur Pétursson á Stegg frá Hrísdal en þeir fengu 8,5 í einkunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×