Innlent

Um­ræða um smá­hýsi lituð af miklu skilnings­leysi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Svala Jóhannsdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar í Víglínunni í dag.
Svala Jóhannsdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar í Víglínunni í dag. Vísir/Einar

Áætlað er að um 350 einstaklingar sem búsettir eru í Reykjavík séu heimilislausir. Verkefnisstýra Frú Ragnheiðar segir gríðarlega mikilvægt að koma til móts við þá einstaklinga sem glíma við heimilisleysi og koma fólki í húsnæði en margir skjólstæðingar Frú Ragnheiðar eru í hópi heimilislausra.

„65% af því fólki sem leitar til Frú Ragnheiðar glímir við heimilisleysi og þegar kemur að þessu ákveðna búsetuúrræði þá hefur reynst mjög erfitt að koma þeim upp víðs vegar í borginni og að ég best veit eru tuttugu smáhýsi sem bíða uppsetningar og eru búin að bíða í tvö til þrjú ár,“ segir Svala Jóhannsdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar í Víglínunni í dag.

Mikil umræða hefur verið síðustu daga um smáhýsi sem reisa á í Hlíðunum. Margir íbúar hverfisins hafa gagnrýnt ákvörðun borgarinnar um staðsetningu smáhýsanna en fyrir framan svæðið sem þau eiga að rísa á er göngu- og hjólastígur sem börn og ungmenni fara reglulega um til að komast leiða sinna á íþróttaæfingar. Þá er Konukot einnig í næsta nágrenni og búsetukjarni.

„Ég skil þessa umræðu upp að ákveðnu marki,“ segir Svala. „En hún er samt lituð af mjög miklu skilningsleysi af því að það að setja nýtt híbýli sem félagslegt úrræði inn í ákveðin hverfi mun ekki auka vandann. Það mun fyrst og fremst draga úr þeim vanda sem hverfið er að upplifa og koma til móts við þarfir og líkamlega heilsu heimilislausra.“

Hún segir að það sem fólk þurfi fyrst og fremst að gera sér grein fyrir sé að það að setja nýtt húsnæði eða búsetuúrræði inn í hverfi muni ekki auka vandann heldur fyrst og fremst draga úr vandanum sem er til staðar. „Þeir einstaklingar sem munu búa í þessum smáhýsum eða í annars konar úrræðum sem eru sett upp í hverfunum eru oft einstaklingar sem eru nú þegar að lifa sínu lífi í hverfinu.“

„Þannig að það mun draga úr öllum samfélagslegum vandamálum að koma fólki inn í húsnæði. Svo eru það bara grundvallarmannréttindi hvers manns að eiga heimili og geta átt sinn stað, upplifað sig örugga og látið sér líða vel,“ segir Svala. „Ef við sem samfélag viljum hafa þau gildi þá verðum við að geta skoðað og komið til móts við fjölbreyttar þarfir hvers og eins.“


Tengdar fréttir

Fannst látinn þar sem reisa á smá­hýsi í Hlíða­hverfi

Íbúar hafa þungar áhyggjur af uppbyggingu smáhýsa í Hlíðahverfi. Í grenndinni eru nú þegar tvö félagsleg úrræði og eru foreldrar uggandi yfir lélegri umhirðu, en dæmi eru um að börn finni notaðar sprautunálar á víðavangi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×