Heilsa

Craving: Pervertísk löngun í sykur og sukk

Ragga Nagli skrifar
Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, skrifar um heilsu á Vísi.
Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, skrifar um heilsu á Vísi. Vísir/Vilhelm

Craving… pervertísk löngun í heilaga þrenningu sykurs, salts og fitu.

Við þekkjum öll þetta fyrirbæri sem vantar kjarnyrta íslenska þýðingu. Cravings er öskrandi pervertísk löngun að hafa eitthvað ákveðið í munninum og eina sem friðþægir þessa öskrandi löngun er að fá þetta eina ákveðna matvæli undir tunguna.

Óþægindin og spennan sem hríslast um skrokkinn þegar cravings dúndra á hjarnann er á pari við að sleikja rafmagnsgirðingu.

Ketó og kálblað

Solla í bókhaldinu er búin að segja þér hvað þarf að gera til að komast í kjólinn fyrir árshátíðina.Þú hentir út öllu brauði svo þú hámir ekki sjö sneiðar með skólaosti og marmelaði eftir vinnu.

Allt sykrað og snakk fór rakleitt í Sorpugám.Bæ bæ Nóakropp og farvel Maarud.

Frystirinn tæmdur af Kjörís og Emmess... já og Daimtertan beint út í tunnu.

Þú heldur þig við einmana kálblað. Vélindað hamast við að kyngja skraufþurri kjúllabringu.Grætur sorgmæddum tárum að drekka grænkálssmúðing sem bragðast eins og rafgeymasýra.

Þú situr fyrir framan tölvuna og Snikkers birtist skyndilega í hugarskotinu. Daðrandi. Lokkandi. Kynþokkafullt.

Nei nei nei... má ekki. Bannað. Sonur Satans.

Þú ákveður seinnipartskaffinu að smyrja frekar hrísköku í með hnetusmjöri til að slökkva þessa þrá.

En hvenær hefur það virkað?

Forgarður helvítis í nammiganginum

Því þú skottast í Nettó eftir vinnu að versla í matinn og allt í einu ertu staddur í nammiganginum... sem þú ætlaðir að forðast eins og forgarð Helvítis.

Glyrnurnar nema tilboð á fjórum Snickers í pakka.... Æi fokk itt.... ég á þetta skilið eftir ömurlega leiðinlegan dag.

Í bílnum á bílastæðinu tætirðu pakkann upp á núlleinni eins og vannærð dúfa á brauðhleif og smá af umbúðunum fara með upp í túlann. Og öll fjögur stykkin hverfa ofan í magaholið eins og sólmyrkvi.

Munnurinn er nýjungagjarn náungi

Samkvæmt nýrri rannsókn í tímaritinu 'Appetite' þegar sömu örfáu ríkismatvælin dag eftir dag eru á matseðlinum vekur það upp klámfengnar langanir í sykur og sveittmeti

Munnurinn er ólíkindatól og nýjungagjarn náungi sem vill fá alla palettuna af bragði að dansa á tungunni.

Salt. Sætt. Súrt. Biturt. Umami.

Hann er áferðarperri og vill allskonar.Krönsí. Mjúkt. Fljótandi.

Hann vill líka mismunandi hitastig. Heitt. Kalt. Volgt

Þjóðarrétturinn er með’etta

Ímyndaðu þér pylsu með öllu og hvernig hún er samsett.

Pylsan sjálf er heit, feit og sölt.Brauðið er volgt, mjúkt og sætt

Steiktur laukur gefur kröns undir tönnBiturleiki úr hráum lauk.

Tómatsósan er fljótandi og sæt.Sinnepið er salt og biturt.

Remúlaðið er sætt og súrt.

Það er ástæða fyrir því að þessi rúlla úr afgangskjöti í skjannahvítu brauði er þjóðarrétturinn.Hann vekur kúlínaríska fullnægingu hjá landanum.

Þegar öll skynfæri eru sátt eftir máltíðina minnkarðu líkurnar á 'cravings'.Þegar mataræðið er fjölbreytt og inniheldur nógu mörg matvæli minnkarðu líkurnar á cravings.

Passaðu þess vegna að fá allan regnbogann af bragði, áferð og hitastigi með í hverri máltíð.

Leiktu við áferðarperrann og bragðarefinn innra með þér.

Ef þú ætlar að fá þér salat í kvöld, ekki sætta þig við einmana kálblað og pappírsþurran kjúkling.Dúndraðu bláberjum fyrir sætu, ristuðum baunum fyrir kröns, balsamdressingu fyrir súru.

Ofnbakaðar heitar sætar kartöflur og kjúlla marineraðan í bitru sinnepi, sykurlausu sírópi og soja fyrir umami.

Fléttaðu líka smávegis af sætmeti og lekkerheitum inn í mataræðið þitt og sestu niður og njóttu hans í fullkominni núvitund með öllum skynfærum.

Ef það á að vera partý í munninum þá þarftu að bjóða heilanum... hann er veislustjórinn.


Tengdar fréttir

Sykurlausir kanilsnúðar Röggu Nagla

Eru ekki allir komnir með ógeð af bananabrauði? Upp í kok af því að vökva súrdeigið í ísskápnum? Hvernig væri þá að skella í sykurlausa kanilsnúða sem eru margfalt betri en dísæta bakarísstöffið.

Samanburður

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, skrifar pistla um heilsu á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×