Makamál

Bone-orðin 10: „Kærleikur við náungann er sexý“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Sara Regal deilir því með lesendum hvað henni finnast heillandi og óheillandi eiginleikar í fari annarra í viðtalsliðnum Bone-orðin 10. 
Sara Regal deilir því með lesendum hvað henni finnast heillandi og óheillandi eiginleikar í fari annarra í viðtalsliðnum Bone-orðin 10.  Aðsend mynd

„Ef þú ert ein/n af þeim sem svarar „Black lives matter“ með „All lives matter“, ekki bjóða mér á deit. Verandi tvíkynhneigð kona sem vinnur hjá einu hýrasta fyrirtæki Íslands, er LGBTQ+ baráttan mér mjög mikilvæg“, segir Sara Regal. Hún deilir með lesendum Vísis hvaða eiginleikar í fari annarra henni finnast heillandi og óheillandi í viðtalsliðnum Bone-orðin 10.

„Ég lærði list- og safnafræði við Háskóla Íslands og starfa núna hjá Pink Iceland en starfaði áður í kvikmyndageiranum“.

 Hjá Pink Iceland vinn ég við það að skipuleggja brúðkaup fyrir ferðamenn sem koma sérstaklega til Íslands til að gifta sig.

Hver er hjúskaparstaðan? „Ég er einhleyp og á eina átta ára gamla stelpu og tveggja ára gamlan hund“.

ON:

1. Númer eitt, tvö og þrjú er húmor. Ég tek sjálfa mig mátulega alvarlega og finnst ekkert skemmtilegra en þegar manneskja kemur mér til að grenja úr hlátri og finnst ég líka ógeðslega fyndin. Orðheppni og „quick-wit“ ofan á húmorinn er síðan home-run fyrir mig.

2. That special something. Einhverjir óútskýranlegir töfrar eða sjarmur sem ekki er hægt að koma í orð.

3. Metnaður. Fátt minna spennandi en staðnaða týpan. Mér finnst fólk sem skorar á sjálft sig í leik og starfi yfirleitt áhugavert.

4. Einlægni. Tilfinningaforðun leiðir yfirleitt ekkert gott af sér. Að vera hreinskilinn og einlægur er eitthvað sem allir ættu að æfa sig meira í og reyna að temja sér.

5. Frumkvæði. Komdu mér á óvart og planaðu eitthvað skemmtilegt. Það þarf ekkert að vera flókið. Stundum er gaman að vera ekki sá sem planar og láta stjana svolítið við sig. Jafnvægi er lykillinn hér.

„Að vera hreinskilinn og einlægur er eitthvað sem allir ættu að æfa sig meira í og reyna að temja sér“.Aðsend mynd

OFF:

1. Dónaskapur og hroki. Mér finnst ekkert meira óheillandi en þegar deitið mitt sýnir af sér hroka og dónaskap. Það er til dæmis alveg hægt að kvarta yfir þjónustu, en gera það af virðingu. Kærleikur við náungann er sexy.

2. Óhóf. Ég er alveg manneskjan sem hefur gaman að því að hafa gaman en mér finnst ekki heillandi þegar deitið er á barnum öll kvöld.

3. Karlremba og karlalæti. Segir sig sjálft, bless!

4. Þröngsýni og fordómar. Ef þú ert ein/n af þeim sem svarar „Black lives matter“ með „All lives matter“, ekki þá bjóða mér á deit. Verandi tvíkynhneigð kona sem vinnur hjá einu hýrasta fyrirtæki Íslands, er LGBTQ+ baráttan mér einnig mjög mikilvæg. Ef þú ert ekki þar þá eigum við ekki samleið.

5. Óhreinlæti. Þú verður að ilma vel ef þetta á að virka.

Sara ásamt hundinum sínum Húgó. Aðsend mynd

Við þökkum Söru Regal innilega fyrir að deila með okkur sínum Bone-orðum og fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófílinn hennar hér. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×