Lífið

Smakkaði allt á matseðlinum á Dunkin' Donuts

Stefán Árni Pálsson skrifar
Keith tekur oft upp á því að smakka allt á matseðli veitingahúsa. 
Keith tekur oft upp á því að smakka allt á matseðli veitingahúsa. 

Árið 1948 í Quincy Massachusetts opnaði William Rosenberg fyrsta Dunkin' Donuts staðinn. Í dag eru staðirnir 12.800 um heim allan.

Hópur sem kallar sig The Try Guys greina oft á tíðum frá sínum tilraunum á YouTube og í nýjasta myndbandinu má sjá Keith, einn af meðlimum hópsins, bragða á öllu því sem er á matseðli Dunkin' Donuts.

Keith hefur áður smakkað allt á matseðlinum hjá Taco Bell, KFC, Burger King og nú Dunkin´ Donuts.

Hér að neðan má sjá hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig en eðli málsins samkvæmt varð hann að borða nokkuð marga kleinuhringi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×