Viðskipti erlent

Færeyingar yngja upp með nýrri Airbus A320 beint úr verksmiðju

Kristján Már Unnarsson skrifar
Þotan lenti á flugvellinum í Vogum í Færeyjum á föstudagskvöld. Hún hefur hlotið nafnið Tita og er með skráningarnúmerið OY-RCL.
Þotan lenti á flugvellinum í Vogum í Færeyjum á föstudagskvöld. Hún hefur hlotið nafnið Tita og er með skráningarnúmerið OY-RCL. Mynd/Atlantic Airways.

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur fengið afhenta nýja þotu af gerðinni Airbus A320neo. Þotan kom beint frá Airbus-verksmiðjunum í Toulouse í Frakklandi á föstudag, lenti í Kaupmannahöfn síðdegis og flaug þaðan til Voga-flugvallar í Færeyjum þar sem hún lenti á föstudagskvöld.

Þotan, með skráningarnúmerið OY-RCL, hefur fengið nafnið Tita, eftir færeysku veflistakonunni Titu Vinther, sem lést í fyrra. Hún tekur 174 farþega í sæti og er leigð frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease Corporation.

Þetta er önnur vél félagsins af A320neo-línunni en þá fyrri fékk Atlantic í fyrrasumar. Félagið hefur á móti losað sig við tvær Airbus A319 þotur. Einnig eru í flotanum tvær eldri Airbus-þotur, þriggja ára gömul A320-200 og átta ára gömul A319-100.

Nýja þotan á Voga-flugvelli á föstudagskvöld. Atlantic Airways er núna með fjórar Airbus-þotur í flotanum og er meðalaldur þeirra aðeins 3,2 ár.Mynd/Atlantic Airways.

Með nýju þotunni lækkar meðalaldur þotuflota Atlantic Airways niður í 3,2 ár, samkvæmt flugsíðunni Planespotters. Atlantic Airways stefnir að því að yngja enn frekar upp í þotuflotanum og reka eingöngu Airbus A320neo. Félagið á von á þeirri þriðju árið 2023 og þeirri fjórðu árið 2024.

Kaup á A320 vélum í stað minni A319 véla áttu þátt í ákvörðun félagsins um að flytja Færeyjaflugið frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkurflugvallar fyrir tveimur árum.

Færeyska félagið er jafnt og þétt að auka tíðni flugferða eftir því sem ferðatakmörkunum kórónufaraldursins er aflétt. Það flýgur núna eina ferð á dag til Kaupmannahafnar og fjölgar þeim í tvær á dag í þessari viku. Þá er áætlunarflug þess til Billund og Álaborgar að fara af stað á ný.

Íslandsflug Atlantic fór á fulla ferð 15. júní og flýgur félagið núna þrjár ferðir í viku til Keflavíkur, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.

Þegar íslensku forsetahjónin héldu í heimsókn til Færeyja fyrir þremur árum flugu þau með Airbus A319 þotu Atlantic, sem sjá má taka á loft og lenda í þessari frétt:





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×