Sport

Þetta vitum við um nýja kónginn af Cross­Fit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eric Roza í ræktinni. Að sjálfsögðu CrossFit.
Eric Roza í ræktinni. Að sjálfsögðu CrossFit. vísir/getty

Greg Glassmann tilkynnti í gær að hann hafði selt CrossFit-samtökin til manns að nafni Eric Roza. En hver er þessi Eric Roza? Vísir kynnti sér þennan viðskiptamann enn frekar.

Það hefur mikið gustað um CrossFit-samtökin að undanförnu eftir ummæli Glassmann eftir dauða Bandaríkjamannsins George Floyd. Íþróttafólk hefur hvert á fætur öðru lýst yfir áhyggjum af stjórnuninni og margir þeirra höfðu hætt við að keppa á heimsleikunum.

Þá kom Eric Roza til sögunnar en hann var lítt þekktur áður en hann lét til skara skríða í gær. Hann er viðskiptamaður sem í gegnum tíðina hefur gengið ansi vel með þær viðskiptahugmyndir sem hann hefur fengið.

Hefur hann hæfileikana til að stýra þessum risa samtökum? Mun hann hafa einhver áhrif á allt það sem hefur gengið á? Þessum spurningum er ósvarað en Vísir tók saman nokkrar staðreyndir um þennan nýja kóng af CrossFit.

Staðreyndir um Eric Roza:

1. Roza var framkvæmdastjóri Datalogix, fyrirtæki sem var árið 2015 metið á 1,2 billjónir punda. Eric breytti Datalogix svo um munaði. Hann breytti því úr greiningarfyrirtæki í stærsta stafræna auglýsingafyrirtækið.

2. Hann er fyrrum CrossFit-ari og er eigandi og stofnaði CrossFit Sanitas sem er staðsett í Colorado í Bandaríkjunum. Ræktarsalurinn hefur oftar en einu sinni verið nefndur sem einn af fimm stærstu CrossFit í heiminum.

3. Hann er formaður TrueCoach sem er stafrænt form fyrir einkaþjálfun.

4. Hann er virkur viðskiptamaður og útskrifaðist frá University of Michigan. Hann náði sér einnig í gráðu frá Stanford háskólanum.

5. Hann var varaformaður og framkvæmdastjóri Oracle Data Cloud og var valinn af Ernst & Young frumkvöðull ársins 2014 í Klettafjallahéraði.

6. Honum er lýst sem manneskju sem hefur mikinn áhuga á gögnum, greiningu, hugbúnaði og viðskiptum. Hann einbeitir sér mikið að andlegri heilsu, gleði og árangri. Í frítíma sínum fer hann á skíði, ferðast eða hjálpar nýjum sem gömlum vinum í að líða betur. Hann hefur einnig komið fram í hljómsveitinni The House Cats þar sem hann syngur, semur lög og spilar á gítar.

7. Hann hefur hlaupið 5 kílómetra á 19:55, á best tæp 109 kíló í „clean og jerk“ og rúmlega 86 kíló í „snatchi.“

Greinin er unnin upp úr frétt Hugo Cross.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×