Handbolti

Tumi vill vinna titla með vinum sínum í Val - „Gerist ekki betra en að fá Snorra sem þjálfara“

Sindri Sverrisson skrifar
Tumi Steinn Rúnarsson hefur leikið mikilvægt hlutverk hjá Aftureldingu síðustu tvö ár.
Tumi Steinn Rúnarsson hefur leikið mikilvægt hlutverk hjá Aftureldingu síðustu tvö ár. VÍSIR/BÁRA

„Ég saknaði þess að vera í Val og spila fyrir uppeldisfélagið,“ segir Tumi Steinn Rúnarsson sem er orðinn leikmaður Vals á nýjan leik eftir að hafa leikið með Aftureldingu síðustu tvö handknattleikstímabil.

Tumi, sem er tvítugur leikstjórnandi, hefur verið í stóru hlutverki hjá Aftureldingu sem varð í 3. sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð. Leiktíðin var styttri en ella vegna kórónuveirufaraldursins. Nú heldur hann hins vegar heim á Hlíðarenda og byrjar æfingar þar að nýju um miðjan næsta mánuð, eftir að hafa komist að samkomulagi við Aftureldingu um riftun samnings sem gilti til næsta árs.

„Það eru leikmenn á mínum aldri sem ég ólst upp með, eins og Arnór [Óskarsson], Tjörvi [Gíslason] og Stiven [Valencia], að stíga upp og fá stærra hlutverk í meistaraflokki Vals núna. Ég upplifði það að vinna titla með þeim í yngri flokkum og langar að gera það aftur, og þá gerir maður það í Val, þar sem mér líður best,“ segir Tumi sem óttast ekki samkeppnina hjá liðinu sem varð deildarmeistari á síðustu leiktíð.

„Á Einari Andra endalaust mikið að þakka“

„Samkeppni er alltaf holl. Það var líka að koma samkeppni í Aftureldingu svo ég hugsaði með mér að ég gæti líka farið í samkeppni í Val. Það er geggjaður klúbbur og svo hef ég mjög sterka trú á Snorra sem þjálfara. Hann var náttúrulega líka miðjumaður, í heimsklassa, og það gerist ekki betra en að fá Snorra sem þjálfara,“ segir Tumi um Snorra Stein Guðjónsson. Hann er þakklátur Aftureldingu og þjálfaranum Einari Andra Einarssyni sem stýrði liðinu þar til í sumar:

„Ég á Aftureldingu alveg hrikalega mikið að þakka, að hafa gefið einhverjum ungum leikmanni úr 3. flokki sénsinn til að spila og þroskast sem leikmaður. Ég á Einari Andra endalaust mikið að þakka. Þvílíkur toppmaður. Og körlunum þarna sem leyfðu manni að vera á miðjunni, eins og Einari Inga, Elvari Ásgeirs, Birki Ben og fleirum. Við skildum í góðu, allir vinir og svona er bara boltinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×