Innlent

Á von á því að samningurinn verði samþykktur

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar

Félagsfundur Flugfreyjufélags Íslands fór fram í morgun þar sem nýr kjarasamningur félagsins og Icelandair var kynntur félagsmönnum. Greidd verða atkvæði um samninginn í næstu viku og á Formaður Flugfreyjufélagsins von á því að samningurinn verði samþykktur.

Samningur Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair var undirritaður í fyrradag og gildir til ársins 2025.

400 félagsmenn mættu á fundinn í dag og úr salnum heyrðist reglulega dynjani lófaklapp.

„Það komu mjög uppbyggilegar og góðar spurningar, bæði varðandi útfærsluatriði og annað en líka spurningar um hvað þetta þýðir og við fögnum því,“ sagði Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður flugfreyjufélags Íslands.

Hvað getur þú sagt mér um innihald samningsins?

„Það sem við gerðum helst var að standa vörð um okkar aðalatriði er varðar starfsöryggi. Við veitum eftirgjöf er varðar hvíldartíma og vaktartíma og setjum upp ákveðin ákvæði sem stuðla að eftirfylgni á þessu sem við erum að breyta,“ sagði Guðlaug.

Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst á mánudag og lýkur í hádeginu á föstudag í næstu viku.

Átt þú von á því að samningurinn verði samþykktur? 

„Já ég fer mjög bjartsýn inn í þessa viku og held að við endum með samþykktan samning,“ sagði Guðlaug.

Í kvöldfréttum okkar í gær var greint frá því að stjórnvöld fylgist náið með framvindu hlutafjárútboðs Icelandair og óformleg vinna í gangi innan stjórnarráðsins við að meta til hvaða ráðstafana þurfi að grípa gangi það ekki eftir.

Forsætisráðherra svaraði því eki með afgerandi hætti hvort til greina kæmi að ríkið stigi inn í gangi hlutafjárútboðið ekki eftir.

„Það er ekki eitthvað sem við erum að reikna með núna. Boltinn er í raun og veru hjá félaginu og það liggur fyrir að þau eru að vinna að sínu plani,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.


Tengdar fréttir

„Boltinn í raun og veru hjá félaginu“

Félagsfundur Flugfreyjufélags Íslands hófst klukkan tíu í morgun á Hilton hóteli þar sem farið var yfir nýjan kjarasamning félagsins og Icelandair sem undirritaður var aðfaranótt gærdagsins.

Samningurinn kynntur fé­lags­mönnum FFÍ

Félagsfundur Flugfreyjufélags Íslands hófst nú klukkan tíu á Hilton hótel þar sem farið er yfir nýjan kjarasamning félagsins og Icelandair sem undirritaður var í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×