Innlent

Telur skimunartilraunina hafa mistekist algjörlega

Sylvía Hall skrifar
cbvc

Jón Magnús Jóhannesson, sérnámslæknir í lyflækningum á Landspítalanum sem starfaði á Covid-göngudeild Landspítalans, segir skimunina á Keflavíkurflugvelli hafa mistekist. Hann var gagnrýnin á þessa áætlun stjórnvalda þegar hún var kynnt en segir ljóst að aðferðin sem er notuð mun ekki ná að greina öll smit sem koma til landsins.

Í gær greindist leikmaður kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta með veiruna eftir að hafa fengið neikvæða niðurstöðu úr skimun á Keflavíkurflugvelli. Hún kom til landsins þann 17. júní frá Bandaríkjunum og spilaði leik við Selfoss degi síðar.

Jón Magnús ræddi skimunina í Reykjavík síðdegis í dag.

„Nákvæmlega það sem við sögðum kom í ljós. Við erum að nota aðferð til skimunar sem er ekki hugsuð sem skimunaraðferð, við erum að fara að missa af tilfellum og það þýðir, einmitt eins og gerðist núna því miður, að einstaklingar munu verða greindir fyrst neikvæðir í skimun og verða síðan jákvæðir og síðan þurfum við að rekja það allt til baka. Og það er akkúrat sem gerðist – því miður.“

Hann segir frekar hafa átt að skoða það að bíða með að létta á sóttkvíarreglum fyrir fólk sem kemur hingað til lands. Þannig hafi verið hægt að hafa betri yfirsýn og landið væri lengur „veirufrítt“.

„Frekar að gera það sem hægt er, að styrkja innviðina þannig að við munum grípa áberandi tilfelli þegar það kemur. Við höfum greiningargetu á Íslandi, við höfum mjög skipulagt heilbrigðiskerfi sem getur tekið á móti þessum tilfellum – auðvitað var þetta erfitt en þetta gekk vel,“ segir Jón Magnús.

Þá sé einnig verklag til staðar til þess að grípa þessi tilfelli ef rétt er staðið að því. Ekki sé hægt að koma í veg fyrir að fólk komi með smit hingað til lands, enda hafi faraldurinn ekki náð hámarki á heimsvísu.

„Það sem skiptir mestu máli er að þegar eitthvað kemur, er að geta stoppað það strax.“

Hann segir klárt mál að fleiri smit komi upp á næstu dögum og vikum. Ekki sé hægt að spá fyrir um hversu mörg þau verða en þau munu koma upp.

„Skimunin ein og sér er ekki að gera hlutina verri heldur erum við hreinlega að setja mjög mikið fjármagn og mjög mikla vinnu í tilraun sem hefur að mínu mati algjörlega mistekist,“ segir Jón Magnús sem telur tilfelli knattspyrnukonunnar sýna fram á galla í kerfinu.

„Strax erum við að sjá gloppurnar í kerfinu. Eins snemma og hægt var að sjá galla, þá sáum við galla í kerfinu. Persónulega finnst mér að tilraunin sé alveg búin að afsanna sig. Við ættum að setja meiri pening í að geta greint tilfelli snemma þegar þau koma til landsins, því við munum ekki stoppa það, og hafa þá innviði til þess að hleypa aftur af stað þeim viðbrögðum sem að við höfðum á sínum tíma.“

Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni. 


Tengdar fréttir

Segjast vera tilbúin fyrir ýmsar aðstæður

,,Við vonum auðvitað það besta fyrir viðkomandi leikmenn, bæði í Breiðablik og Selfoss. En það er rétt, við erum að bíða eftir frekari niðurstöðu og fá upplýsingar um það mál. Það er því miður grunur á að það sé smit í Selfoss en það er ekki komin greining þannig við vitum ekki fyrir víst,“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×