Lífið

Dagskrá HönnunarMars: Dagur fimm

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Á Hafnartorgi sýnir FÍT farandsýningu Art Directors Club of Europe og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.
Á Hafnartorgi sýnir FÍT farandsýningu Art Directors Club of Europe og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic. FÍT/Haraldur Jónasson

Í dag er síðasti dagur HönnunarMars hátíðarinnar. Við minnum á að alla dagskránna er hægt að nálgast á vefsíðu HönnunarMars og þar er hægt að finna gagnvirkt kort sem sniðugt er að til að skipuleggja sýningarflakk dagsins.  Hér fyrir neðan má finna lista yfir viðburði dagsins en lista yfir allar opnar sýningarnar má finna á vef HönnunarMars.

HönnunarMars Dagur fimm – Sunnudagurinn 28. júní

12:00 – 17:00 Opnun

Ilmbanki íslenskra jurta

Nordic Angan, Álafossvegur 3, 270 Mosfellsbær

-

13:00 – 14:30 Vinnustofa

Pappírsblóm – Fjölskyldusmiðja – Þrykk með Rúnu Þorkelsdóttur

Hönnunarsafn Íslands, Garðatorg 1, 210 Garðabær

-

12:00 – 20:00 Opin vinnustofa

Catch of the day: Limited Covid-19 edition

Studio Björn Steinar, Bríetartún 13

-

12:00 – 20:00 Opin vinnustofa

Plastplan / Plastplan

Plastplan, Bríetartún 13

-

14:00 – 15:00 Leiðsögn

Hafnarhús – pakkhús hugmynda í miðborginni

Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Tryggvagata 17

-

14:00 - 15:00 Spjall

efni:viður – sýnendaspjall – AGUSTAV og Sindri Leifsson

Hafnarborg – Centre of Culture and Fine Art, Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður

-

14:00 – 15:00 Spjall

Kósý heimur Lúka II

Hönnun og handverk, Eiðistorg 15, 170 Seltjarnarnes

-

14:00 – 16:00 Viðburður

Mats Gustafson / Að fanga kjarnann - Vatnslitasmiðja fyrir fullorðna

Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegur 7

-

14:00 – 17:00 – Viðburður

Búkolla – Búkolluteiti

Studíó, Grjótagata 6

-

17:00 – 19:00 Viðburður

Meira og minna - HönnunarHappyHour

Sýningar á Meira og minna:

Silfra

Trophy

Hvenær verður vara að vöru?

Ótrúlegt mannlegt kolleksjón

Hafnartorg, Göngugatan á Hafnartorgi

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.

HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.


Tengdar fréttir

Fjölskylduvænn HönnunarMars: Búningar, tónlistarhringur og ilmsturta

Í dag er síðasti dagur HönnunarMars og margir borgarbúar munu flakka á milli sýningarstaða. Sýningar hönnuðanna eru fjölbreyttar og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Það eru samt nokkrar sýningar sem henta einstaklega vel fyrir alla fjölskylduna.

Nýta tóm verslunarrými í miðborginni til að sýna hönnun í gegnum glugga

Hönnuðir og húsnæðiseigendur í miðbænum leiða saman hesta sína og gefa gestum og gangandi tækifæri á að skoða alls kyns hönnun núna í tilefni HönnunarMars sem lýkur í dag. Í gegnum tíu glugga víðs vegar um miðborgina hefur vegfarendum verið boðið að staldra við, líta inn um glugga og fá innsýn í fjölbreytilegan heim hönnunar.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall þrjú

Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars. Garðar og Hlín Helga ræða í dag við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt, Eygló Margréti Lárusdóttur fatahönnuð og stofnanda vörumerkisins EYGLÓ, Baldur Helga Snorrason arkitekt og Arnar Inga Viðarsson, grafískan hönnuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×