Viðskipti innlent

Fresta hlutafjárútboði fram í ágúst

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair á hluthafafundi í vor. 
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair á hluthafafundi í vor.  Vísir/Vilhelm

Nái Icelandair að ljúka samkomulagi við helstu hagaðila sína í júlí mun félagið hefja hlutafjárútboð í ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair sem send var til kauphallar í morgun. Þar kemur einnig fram að góður árangur hafi náðst í viðræðum við marga af umræddum aðilum en samkomulag við þá er forsenda hlutafjárútboðsins. Viðræður við flugvélaleigusala, færsluhirði og flugvélaframleiðandann Boeing eru til að mynda enn í gangi.

Viðræður í aðdraganda fyrirhugaðs hlutafjárútboðs Icelandair hafa staðið yfir undanfarnar vikur. Félagið stefndi að því að samkomulag við helstu hagaðila lægi fyrir í dag, 29. júní, en það virðist þó ekki í höfn, ef marka má tilkynningu frá félaginu nú í morgun.

Bent er á í tilkynningunni að þegar hafi náðst samningar á mikilvægum vígstöðvum. Þannig hafa til mynda verið undirritaðir nýir kjarasamningar við stéttarfélög flugmanna, flugfreyja og flugþjóna. Atkvæðagreiðsla um flugfreyjusamninginn hefst í þessari viku og gerir formaður Flugfreyjufélags Íslands ráð fyrir að hann verði samþykktur af félagsmönnum.

Lýsa jákvæðum viðbrögðum kröfuhafa

Þá vinnur Icelandair jafnframt með íslenskum stjórnvöldum, Íslandsbanka og Landsbankanum að útfærslu ríkisábyrgðar á láni til félagsins. „Lánafyrirgreiðsla íslenskra stjórnvalda verður þó meðal annars háð samkomulagi við kröfuhafa og að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár,“ segir í tilkynningu.

Icelandair kveðst einnig hafa fengið jákvæð viðbrögð frá meginþorra kröfuhafa sem hafa lýst yfir vilja til að vinna með félaginu í gegnum það ferli sem nú stendur yfir. Samningaviðræður við nokkra lykilaðila standi aftur á móti enn yfir.

„Á meðal þeirra eru flugvélaleigusalar og færsluhirðir. Félagið á jafnframt enn í samningaviðræðum við Boeing um frekari bætur vegna kyrrsetningar MAX vélanna og afhendingar véla sem enn eru útistandandi samkvæmt samningi. Samningaviðræður við þessa aðila hafa þokast áfram á undanförnum vikum og gætu skilað niðurstöðu á næstu dögum haldi viðræðurnar áfram á uppbyggilegum nótum,“ segir í tilkynningu.

Endurskipulagning gæti tekið ár

Með því að ljúka samkomulagi við fyrrnefnda aðila í júlímánuði mun Icelandair hefja hlutafjárútboð í ágúst. Fari hins vegar svo að samningaviðræður skili ekki tilætluðum árangri mun félagið þurfa að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu án aðkomu íslenskra stjórnvalda.

„Slíkt ferli gæti tekið allt að tólf mánuði og á meðan á því stæði þyrfti félagið að fresta öllum greiðslum til fjármögnunaraðila félagsins.“

Þá kemur fram í tilkynningu að handbært fé Icelandair Group er nú um 150 milljónir Bandaríkjadala, tæplega 21 milljarður íslenskra króna. Það metur félagið sem umfram þriggja mánaða rekstrarkostnað miðað við núverandi aðstæður.

„Það er mat Icelandair Group að fjárhagsleg endurskipulagning sem byggir á gagnkvæmum samningum við kröfuhafa sé ákjósanlegasta leið félagsins til að tryggja hagsmuni allra aðila, þar með talið hluthafa, fjármögnunaraðila, birgja, viðskiptavina og starfsfólks,“ segir í tilkynningu Icelandair.


Tengdar fréttir

Stjórnvöld fylgjast náið með stöðu Icelandair

Stjórnvöld fylgjast náið með framvindu hlutafjárútboðs Icelandair og óformleg vinna er í gangi innan stjórnarráðsins við að meta til hvaða ráðstafana þurfi að grípa gangi það ekki eftir.

„Risastórt fyrir stéttina“

Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) vann varnarsigur með kjarasamningnum sem undirritaður var við Icelandair í nótt.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×