Skoðun

Er Þórarinn Tyrfings­son orðinn að vanda SÁÁ?

Ingimar Karl Helgason skrifar

Já! er því miður svarið við þessari spurningu. Þetta er stórt orð, en hvernig kemur það til?

Á aðalfundi SÁÁ sem haldinn verður á Hilton hótelinu kl. 17 á morgun, verður tekist á um framtíð samtakanna. Við kjósum á milli gamla tímans og hins nýja. Þórarinn er fulltrúi fyrir liðna tíð og barátta hans fyrir áhrifum og upphefð innan SÁÁ virðist knúin áfram af ofmati á eigin getu og hreinum og beinum ranghugmyndum.

Stuðningsfólk Þórarins hringir nú sem eldur í sinu um allan bæ og hvíslar að fólki að allt sé í steik hjá SÁÁ, að faglegt og nútímalegt meðferðarstarf sem byggist á þekkingu og samvinnu sé vandamálið. Að án Þórarins Tyrfingssonar verðir eignir og starf SÁÁ afhent ríkinu. Þetta er í besta falli ímyndun. Í versta falli gróf ósannindi.

Svo er fólki sagt – og það segir hann sjálfur – að sterkur leiðtogi sé sá eini sem geti leyst þessi ímynduðu vandamál. Hefur einhver heyrt svona lagað áður?

Framtíð SÁÁ þarf að byggjast á samvinnu. Meðferðarstarfið þarf að byggjast á faglegri og nútímalegri sýn. Fjármál SÁÁ þurfa að byggja á langtímahugsun. SÁÁ á ekki að reiða sig á spilavíti!

Það er þessi framtíðarsýn sem ég ætla að velja á aðalfundi SÁÁ á morgun. Fyrir þessari sýn stendur Einar Hermannsson og stór hópur af góðu fólki úr öllum geirum samfélagsins og grasrótar SÁÁ. Þessi góði hópur vill styðja við þá faglegu og nútímalegu sýn sem reynsluboltinn Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs hefur innleitt í meðferðarstarfinu með góðum árangri. Þessi hópur vill reisa styrkar stoðir undir rekstur SÁÁ sem verður góður grunnur að áframhaldandi samfélagslegu starfi.

Starfsemi SÁÁ er ein sú mikilvægasta í landinu. Fíknisjúkdómurinn hrjáir ótrúlega marga einstaklinga og fjölskyldur. Hlutverk og skylda SÁÁ er gagnvart þessu fólki, númer eitt tvö og þrjú!

Til þess að við getum sinnt þessum grunnskyldum okkar þarf ekki aðeins skýra sýn, heldur samvinnu, yfirvegun og vinnufrið.

Kannanir Sameykis (áður SFR) sýna að starfsánægja félagsmanna hjá SÁÁ hefur stórbatnað undir faglegri stjórn Valgerðar Rúnarsdóttur og nálgast það besta sem þekkist! Áður var hún nálægt botninum. Þá var Þórarinn Tyrfingsson við stjórn. Þetta eru einfaldar staðreyndir sem ekki verður haggað.

Þeir stjórnarhættir og fortíðarsýn sem Þórarinn Tyrfingsson stendur fyrir eiga ekki erindi í nútímanum og alls ekki til framtíðar.

Ég þakka Þórarni Tyrfingssyni gott og mikið brautryðjendastarf, en ef hann vill bjarga SÁÁ núna, þá gerir hann það best með því að sleppa tökunum og láta aðra taka við keflinu og leiða SÁÁ inn í framtíðina.

Höfundur er fréttamaður og skjólstæðingur SÁÁ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×