Erlent

Íranir gefa út handtökuskipan á hendur Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Engar líkur er á því að Trump forseti verði handtekinn, þrátt fyrir kröfu íransks saksóknara um að hann verði látinn svara til saka fyrir drápið á Soleimani, yfirmanni sérsveitar íranska byltingarvarðarins í janúar.
Engar líkur er á því að Trump forseti verði handtekinn, þrátt fyrir kröfu íransks saksóknara um að hann verði látinn svara til saka fyrir drápið á Soleimani, yfirmanni sérsveitar íranska byltingarvarðarins í janúar. AP/Evan Vucci

Stjórnvöld í Teheran gáfu út handtökuskipun á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta og óskuðu eftir að stoð alþjóðalögreglunnar Interpol til að handsama hann í dag. Auk Trump vilja Íranir handtaka þrjátíu aðra Bandaríkjamenn sem þeir telja hafa staðið að drónaárás sem felldi íranskan herforingja í Bagdad í janúar.

Ali Alqasimehr, saksóknari í Íran, vill að Trump og aðrir sem áttu þátt í drónaárásinni sem varð Qassem Soleimani herforingja að bana 3. janúar svari til saka fyrir „morð og hryðjuverk“, að sögn íranska ríkisfjölmiðilsins IRNA.

Interpol hefur ekki tjáð sig um beiðni íranska saksóknarans, að sögn AP-fréttastofunnar. Ólíklegt sé að alþjóðalögreglan fallist á kröfuna þar sem reglur hennar banna að stofnunin taki þátt í aðgerðum sem teljast pólitískar.

Krafan er sögð endurspegla vaxandi spennu á milli Írans og Bandaríkjanna eftir að Trump rifti kjarnorkusamningnum sem heimsveldin gerðu við Íran.

Soleimani var einn æðsti yfirmaður íranska byltingarvarðarins. Bandarískir drónar skutu eldflaugum að bílalest Soleimani á flugvelli í Bagdad í Írak. Talið er að Soleimani hafi látist samstundist. Auk hans féll Abu Mahdi al-Muhandis, næstráðandi írösku hersveitanna sem nefna sig Lýðaðgerðasveitirnar og njóta stuðnings íranskra stjórnvalda, og fjórir aðrir.


Tengdar fréttir

Þúsundir komu saman vegna út­farar So­leimani

Gríðarlegur fjöldi kom saman í írönsku höfuðborginni í morgun þar sem útför herforingjans Qasem Soleimani fór fram en hann var ráðinn af dögum af Bandaríkjamönnum í Bagdad í síðustu viku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×