Innlent

Til skoðunar að breyta lögum í kjöl­far brunans

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Jóhann K. Jóhannsson skrifa
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segir til skoðunar hvort bruninn á Bræðraborgarstíg kalli á laga- eða reglubreytingar.
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segir til skoðunar hvort bruninn á Bræðraborgarstíg kalli á laga- eða reglubreytingar. Vísir/Vilhelm

Velferðarnefnd boðaði félagsmálaráðherra til fundar í dag vegna brunans á Bræðraborgarstíg. Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu vegna aðbúnaðar erlends verkafólks sem leigi jafnvel íbúðir við óviðunandi aðstæður. Vettvangsrannsókn á tildrögum brunans er ekki lokið.

Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra var boðaður á fund Velferðarnefndar klukkan tíu í morgun þar sem farið var yfir húsnæðismál á leigumarkaði, brunamál og brunavarnir í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg 1 á fimmtudag í síðustu viku þar sem þrír létust. Þá hafa Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Nikulás Úlfar Másson, byggingarfulltrúi í Reykjavík verið boðaðir á fund Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna sama máls.

Fundi Velferðarnefndar lauk skömmu fyrir hádegi og sagði félagsmálaráðherra að skoðað verði hvort gera þurfi laga- eða reglubreytingar í kjölfar brunans.

„Við vorum að fara yfir þennan harmleik sem þarna gerðist og ég var að segja frá því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er búin að hefja rannsókn á málinu, bæði á slökkviþættinum, brunavörnum hússins og líka erum við að skoða í samstarfi við HMS samhliða þessu hvort þetta kalli á einhverjar laga- eða reglubreytingar,“ sagði Ásmundur Einar, í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag.

Efling gagnrýnir aðbúnað erlends verkafólks

„Síðan vorum við að fara yfir félagslega stöðu innflytjenda á vinnumarkaði og hvernig staða þeirra aðgerða er sem að við höfum verið að vinna að hér í ráðuneytinu í tengslum við lífskjarasamningana. Hluti af því er kominn til framkvæmda, hluti af því er væntanlegt en hefur dregist vegna Covid,“ sagði Ásmundur en leggja þurfti niður öll störf ráðuneytisins frá byrjun mars þar til í maí nema þau sem tengdust Covid.

„Ég held það sé alveg ljóst að það er full þörf á þeim aðgerðum sem að lífskjarasamningarnir kváðu á um.“

Sérðu fyrir þér að ráðast þurfi strax í breytingar á lögum og auka eftirlitsþáttinn?

„Ég held það sé ástæða til þess að skoða það. Í dag er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að funda með slökkvistjóranum á höfuðborgarsvæðinu og fleiri aðilum. Við ætlum okkur að klára þessa vinnu núna, samtali á milli aðila,“ sagði hann.

„Þessi rannsókn þarf að fara fram og ég held það muni þurfa að skoða einhverjar breytingar til að tryggja betur stöðu almennings í svona málum,“ sagði Ásmundur.

Stéttarfélagið Efling gagnrýnir harðlega, í yfirlýsingu frá félaginu frá því í morgun, aðbúnað erlends verkafólks og segir að fólkið sem lést í brunanum hafi lent í klóm einstaklings sem hafi leigt þeim hættulegt húsnæði í óboðlegu umhverfi. Tvö þeirra sem létust voru félagsmenn Eflingar.

Sérfræðingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar og miðlægrannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsaka tildrög brunans og alla verkþætti sem snúa að slökkvistarfi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er vettvangsrannsókn enn ólokið. Maður á sjötugsaldri situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins en lögregla greindi frá því á föstudag að rökstuddur grunur væri um að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum.


Tengdar fréttir

Rannsókn geti tekið tvo til þrjá mánuði

Bruninn á Bræðraborgarstíg gefur hugsanlega tilefni til að gera breytingar á lögum og reglum um brunavarnir og verklag að sögn forstöðumanns hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

„Þessi harmleikur er ekkert slys“

Mikil sorg og reiði ríkir í vesturbæ Reykjavíkur en hátt í fjögur hundruð manns komu saman í dag til að votta þeim sem létust í brunanum á Bræðraborgarstíg á fimmtudag virðingu sína og mótmæla bágri stöðu erlends verkafólks hér á landi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×