Fótbolti

Sara orðin leikmaður Evrópumeistaranna

Sindri Sverrisson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur verið afar sigursæl með Wolfsburg. Hér fagnar hún fjórða Þýskalandsmeistaratitlinum með Felicitas Rauch og stórvinkonu sinni Pernille Harder.
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur verið afar sigursæl með Wolfsburg. Hér fagnar hún fjórða Þýskalandsmeistaratitlinum með Felicitas Rauch og stórvinkonu sinni Pernille Harder. VÍSIR/GETTY

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, hefur skrifað undir samning við franska stórveldið Lyon.

Samningur Söru við Lyon er til tveggja ára. Lyon hefur unnið Meistaradeild Evrópu fjögur ár í röð og getur unnið Evrópumeistaratitilinn í fimmta sinn í ágúst. Liðið varð í vor franskur meistari fjórtánda árið í röð en það var þremur stigum fyrir ofan PSG þegar tímabilið í Frakklandi var blásið af í mars vegna kórónuveirufaraldursins.

Sara, sem er 29 ára gömul, skilur við Wolfsburg sem þýskur meistari til fjögurra ára. Hún kom til Wolfsburg árið 2016 og hefur unnið þýska meistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn á hverju ári, í stóru hlutverki á miðjunni hjá þessu stjörnum prýdda liði. Hún komst með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2018 þar sem Wolfsburg tapaði einmitt gegn Lyon í framlengdum leik, eftir að Sara hafði farið meidd af velli. Sama ár var Sara valin íþróttamaður ársins á Íslandi.

Sara hóf atvinnumannsferilinn með Rosengård (sem þá hét reyndar Malmö) í Svíþjóð þar sem hún lék á árunum 2011-2016. Hún varð Svíþjóðarmeistari fjórum sinnum og bikarmeistari einu sinni. Á Íslandi lék hún með Breiðabliki í þrjú ár í efstu deild en Sara er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði.

Sara var aðeins 16 ára þegar hún lék sinn fyrsta A-landsleik. Hún hefur farið með Íslandi á þrjú stórmót og er nú aðeins tveimur leikjum frá því að jafna met Katrínar Jónsdóttur sem leikið hefur flesta A-landsleiki Íslendings í fótbolta, eða 133 talsins. Sara gæti jafnað metið þegar Ísland heldur áfram leið sinni á næsta EM með leikjum við Lettland og Svíþjóð á Laugardalsvelli 17. og 22. september. EM fer fram í Englandi sumarið 2022, en því var frestað um eitt ár vegna kórónuveirufaraldursins.


Tengdar fréttir

Lyon verið í sambandi við Söru í tvö ár

Besta knattspyrnulið Evrópu síðustu ár, Lyon, hefur verið í sambandi við landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur síðustu tvö ár. Sara yfirgefur Wolfsburg í sumar og hefur verið sterklega orðuð við Lyon.

Sara á leið til besta félagsliðs Evrópu

Sara Björk Gunnarsdóttir er á leið til sigursælasta knattspyrnuliðs Evrópu og sennilega besta knattspyrnuliðs heims í dag, franska félagsins Lyon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×