Gylfi skoraði sitt fyrsta mark í rúma átta mánuði í góðum sigri Everton

Ísak Hallmundarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton í kvöld. vísir/getty

Gylfi lék allan leikinn og skoraði sitt fyrsta mark í rúma átta mánuði er Everton sigraði Leicester í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu, lokatölur 2-1. 

Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Everton strax á 10. mínútu. Á 16. mínútu fékk Everton síðan víti. Gylfi Þór fór á punktinn og skoraði til að tvöfalda forystu Everton.

Staðan í hálfleik var 2-0 en í upphafi síðari hálfleiks, á 51. mínútu, minnkaði Kelechi Iheanacho muninn fyrir Leicester. Leicester var töluvert meira með boltann í seinni hálfleik en náðu ekki að jafna metin og lokatölur eins og áður segir 2-1 fyrir Everton.

Everton er eftir sigurinn í 11. sæti með 44 stig, aðeins tveimur stigum á eftir Arsenal í 7. sæti. Á meðan er Leicester í 3. sæti með 55 stig. 

Brendan Rodgers og lærisveinar hafa verið í frjálsu falli og aðeins unnið einn leik af síðustu átta leikjum sínum í deildinni. Þeir eru aðeins þremur stigum á undan Manchester United og Wolves sem eru í 5. og 6. sætinu og einu stigi á undan Chelsea sem eiga leik til góða gegn West Ham í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira