Lífið

Íslensk hönnun í allt sumar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Skólavörðustígur - Hafnarborg - Lækjartorg - Hönnunarsafn Íslands.
Skólavörðustígur - Hafnarborg - Lækjartorg - Hönnunarsafn Íslands. Vísir/Vilhelm

HönnunarMars fór fram dagana 24. til 28. júní en þó hátíðinni hafi formlega lokið á sunnudag þá eru margar sýningar opnar áfram í sumar og jafnvel fram á haust. Þeir sem misstu af HönnunarMarsí ár geta því kynnt sér listann hér fyrir neðan í fréttinni. Nánari upplýsingar um hverja sýningu má finna á vef hátíðarinnar.

HönnunarMars sýningar sem enn eru opnar: 

Bambahús – Norræna húsið – Opið til 15.september

Hafnarhús – pakkhús hugmynda í miðborginni – Listasafn Reykjavíkur/Hafnarhús - Opið til 16.júlí

Efni:viður – Hafnarborg – Opið til 23. Ágúst

Sveinn Kjarval – Hönnunarsafn Íslands – Opið til 30.ágúst

Flokk till you dropp – Hönnunarsafn Íslands – Opið til 30. Ágúst

Safnið á röngunni – Hönnunarsafn Íslands – Opið til 30. ágúst

Pappírsblóm – Hönnunarsafn Íslands – Opið til 6. September

FÍT – göngugatan Hafnartorgi (gluggar)

Okið – opið alla virka daga milli 9 og 18

Nýju fötin keisarans – göngugatan Hafnartorgi (gluggar)

Mats Gustafson/Að fanga kjarnann – Listasafn Íslands – Opið til 30.ágúst

Fan chair og Trophy – saman í rými - göngugötunni Hafnartorgi (gluggar)

Ilmbanki íslenskra jurta – Álafossvegi 27, Mosfellsbæ – opið laugadaga og sunnudaga 12 – 17

Næsta stopp – Hefur flutt úr Ráðhúsinu í Hamraborg – Opið til 3.ágúst

Ó-lykt – Fischer – opin á opnunartíma Fischer í allt sumar

Prentmyndamót – Landsbókasafn – Opið til 4.október

Torg í speglun – Lækjartorg

Norður Norður – Fólk – Rammagerðin 12 – Framlengt um óákveðin tíma

Farmers market X Blue lagoon – í sölu í verslun Bláa lónsins Norðurljósavegi 9, Grindavík

Hönnunarsafn Íslands - opið í allt sumar, alla daga nema mánudaga.

Ragna Rok - samstarf 66 Norður og Rögnu Ragnarsdóttur - húfukollurnar verða áfram til sölu í verslunum 66°Norður

Samfélagsmiðlaherferðin #Íslenskflík er líka enn í fullum gangi. Íslendingar eru hvattir til þess að birta myndir af íslenskri hönnun sem þeir eiga í fataskápnum. Myndirnar má skoða á Instagram undir merkinu #íslenskflík. 


Tengdar fréttir

Fjölskylduvænn HönnunarMars: Búningar, tónlistarhringur og ilmsturta

Í dag er síðasti dagur HönnunarMars og margir borgarbúar munu flakka á milli sýningarstaða. Sýningar hönnuðanna eru fjölbreyttar og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Það eru samt nokkrar sýningar sem henta einstaklega vel fyrir alla fjölskylduna.

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall þrjú

Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars. Garðar og Hlín Helga ræða í dag við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt, Eygló Margréti Lárusdóttur fatahönnuð og stofnanda vörumerkisins EYGLÓ, Baldur Helga Snorrason arkitekt og Arnar Inga Viðarsson, grafískan hönnuð.

„Þakklát fyrir hvern dag sem við getum verið að þessu“

Hönnunarteymið AGUSTAV er skipað hjónunum Ágústu Magnúsdóttur og Gustav Jóhannssyni. Þau taka þátt í HönnunarMars í ár og sýna bæði í Hafnarborg og í nýlegri verslun sinni á Skólavörðustíg 22. Þau vinna með við og nýta hvern einasta viðarbút sem þau fá alveg í þaula.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×