Sport

Meistaramót Íslands fært til Akureyrar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hilmar Örn Jónsson og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttafólk ársins 2019.
Hilmar Örn Jónsson og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttafólk ársins 2019. Vísir/FRÍ

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum utanhúss mun ekki fara fram á Kópavogsvelli eins og upprunalega stóð til. Í staðinn mun mótið fara fram á Þórsvelli á Akureyri dagana 25. og 26. júlí. Ástæðan er einfaldlega sú að vallarkostur á höfuðborgarsvæðinu stenst ekki kröfur Frjálsíþróttasambandsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Frjálsíþróttasambandið sendi frá sér fyrr í dag. Þar kemur einfaldlega fam að Kópavogsvöllur standist ekki kröfur og flytja þurfi mótið. 

Framkvæmdir á Laugardalsvelli koma í veg fyrir að hægt sé að halda mótið í Laugardalnum líkt og í fyrra. Aðrir vallarkostir í Reykjavík standast ekki kröfur og þá er ekki hægt að keppa á Selfossi þar unglingalandsmót UMFÍ fer þar fram frá 30. júlí til 2. ágúst. 

Að lokum varð Þórsvöllur fyrir valinu þar sem hann er eini löglegi átta brauta völlur landsins þar sem hægt er að keppa í öllum keppnisgreinum. 

Tilkynning FRÍ

Undanfarna daga hafa stjórn og starfsfólk unnið úr þröngri stöðu eftir að í ljós kom að Meistaramót Íslands gæti ekki farið fram á Kópavogsvelli líkt og áður hafði verið auglýst. Nú hafa í annað sinn á fáum árum vaskir Norðlendingar, úr UFA á Akureyri, stigið fram og boðið fram sína reynslu og kunnáttu í mótahaldi sem og aðstöðu á hinum glæsilega Þórsvelli. Þórsvöllur er nú eini löglegi átta brauta völlur landsins þar sem keppa má í öllum keppnisgreinum á einum og sama vellinum.

Stjórn FRÍ vill færa UFA sérstakar þakkir fyrir sína framgöngu en einnig verður að þakka sérstaklega Akureyrarbæ sem hefur tryggt frjálsíþróttamönnum þessa mikilsverðu aðstöðu. Nú þegar ljóst er að frjálsíþróttavellir landsins eiga undir högg að sækja er ómetanlegt að sjá öflugt sveitarfélag eins og Akureyrarbæ standa með frjálsum og tryggja að afreksmenn sem almenningur geti hlaupið, stokkið og kastað við úrvals aðstæður í fallegu umhverfi Eyjafjarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×