Viðskipti innlent

Tekjurnar úr 700 milljónum niður í 700 þúsund

Kristín Ólafsdóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa
Þórir Garðarsson er framkvæmdastjóri Gray line
Þórir Garðarsson er framkvæmdastjóri Gray line Stöð 2/Egill

Tekjur rútufyrirtækisins Gray line fóru úr sjö hundruð milljónum á þriggja mánaða tímabili niður í sjö hundruð þúsund eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á. Félagið er komið í greiðsluskjól og fasteignir hafa verið settar á sölu.

Gray line er eitt þeirra fyrirtækja í ferðaþjónustu sem gripið hafa til þess ráðs að óska eftir greiðsluskjóli, í samræmi við lög um um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar sem Alþingi samþykkti í júní.

„Eins og staðan er í dag þá sjáum við því miður ekki til lands. Við áttum kannski von á að eitthvað færi að rofa til núna í júlí en það er svosem ekki mikið að ske. Það sem við sjáum í kortunum er að bókanir fyrir seinnipart haustsins, nóvember, desember, janúar, febrúar eftir áramótin eru ágætlega góðar miðað við á síðasta ári en sumarmánuðirnir eru eiginlega farnir fyrir vind sýnist mér,“ segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri Gray line.

Þrátt fyrir erfiða stöðu sjái hann fram á það takist að halda fyrirtækinu á floti en yfir 90% starfsfólks hefur verið sagt upp og vinnur nú uppsagnarfrest.

„Síðan fækkar töluvert eftir þennan mánuð en við erum ekki búin að taka ákvörðunum það hversu margir verða áfram inn í haustið, inn í ágúst,“ segir Þórir.

Þá hefur húsnæði fyrirtækisins við Klettagarða verið auglýst til sölu.

„Þetta er bara hús. Það sem skiptir mestu máli er að fyrirtækið komi vel út úr þessu og geti haldið áfram að afla hér tekna.“

Hann segir að skimun á landamærum um miðjan júní hafi litlu breytt, enn sem komið er. Innkoman sé ennþá lítil sem engin.

„Við erum að tala um að mánuðina fyrir covid vorum við með 700 milljónir í tekjur fyrir þá þrjá mánuði. Síðustu þrjá mánuði eftir covid þá vorum við með 700 þúsund. Þannig að það er eitt prómill,“ segir Þórir.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×