Innlent

„Allir helstu fýlu­púkar landsins eru búnir að segja að þetta sé ömur­legt mynd­band“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá Sindra (í gulu) fagna Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu 2019 með KR, þáverandi félagsliði sínu. Hann leikur nú fyrir KV.
Hér má sjá Sindra (í gulu) fagna Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu 2019 með KR, þáverandi félagsliði sínu. Hann leikur nú fyrir KV. Vísir/Daniel Thor

Sindri Snær Jensson, knattspyrnumaður og eigandi Húrra Reykjavíkur, segist gríðarlega ánægður með kynningu Knattspyrnusambands Íslands á nýjum búningum landsliða Íslands, sem og búninginn sjálfan. Hann gefur lítið fyrir háværa gagnrýni á framsetningu KSÍ á kynningarefni í kringum nýtt útlit landsliðanna. Þetta kom fram í viðtali við Sindra í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Kynning KSÍ á nýju merki sambandsins hefur verið fremur umdeild, en margir hafa sett fram sjónarmið um að bragur myndbandsins sé heldur þjóðrembingslegur, og jafnvel fasískur.

Sjálfur gefur Sindri Snær lítið fyrir tengingar við fasisma og annað. Honum finnist myndbandið frábært, og kallar það „gæsahúðarmyndband.“

„Auðvitað er verið að færa í stílinn. Það er aðeins verið að gera eitthvað extra og dramatík. Allir helstu fýlupúkar landsins eru búnir að segja að þetta sé ömurlegt myndband. Þannig að ég held að þetta sé bara frábært myndband,“ segir Sindri.

Gæti selt búninginn í Húrra

Sindri er sem fyrr segir eigandi Húrra Reykjavíkur, og rekur tvær verslanir undir því nafni í miðbæ Reykjavíkur. Hann segir margt af því nýja sem KSÍ var að kynna, aukahluti og varning vera það flott, að það væri hægt að selja í verslununum, sem selja þann tískufatnað sem þykir móðins hverju sinni. Það hafi ekki áður átt við um varning undir merkjum KSÍ.

„Við hefðum getað selt frönsku treyjuna sem var svört með hvítu, og Nígeríutreyjuna sem var græn og öll í munstri. En þetta gætum við alveg selt í Húrra, ekki spurning.“

Sjálfur gefur Sindri heildarpakkanum, búningnum, varningnum og kynningarefni KSÍ, níu í einkunn.

„Ég er virkilega ánægður að sjá þetta hjá KSÍ.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×