Sport

Dagskráin í dag: Tekst Gróttu að skora sitt fyrsta mark gegn HK? KR fær Víkinga í heimsókn, Tórínóslagurinn og Pepsi Max tilþrifin

Ísak Hallmundarson skrifar
Grótta hefur ekki enn fengið að fagna marki í efstu deild. Þeir mæta HK kl. 13:50 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Grótta hefur ekki enn fengið að fagna marki í efstu deild. Þeir mæta HK kl. 13:50 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. vísir/vilhelm

Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Tveir leikir úr Pepsi Max deild karla verða í beinni, Tórínóslagurinn á Ítalíu, PGA mótaröðin í golfi og enska 1. deildin ásamt fleira góðgæti. 

Þetta byrjar allt saman í hádeginu á leik Derby og Nottingham Forest í ensku 1. deildinni. Bæði lið eru í baráttu um að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni en Wayne Rooney og félagar í Derby hafa verið sjóðheitir undanfarið og unnið fimm leiki í röð. Bein útsending hefst kl. 11:25 á Stöð 2 Sport 2.

Næst er haldið út á Seltjarnarnes þar sem Grótta fær HK í heimsókn í Pepsi Max deild karla. Grótta er enn án stiga í deildinni og hafa ekki náð að skora mark, það er spurning hvað þeir gera gegn óútreiknanlegu HK-liði sem tapaði síðasta leik 0-4 á heimavelli gegn Val eftir að hafa unnið Íslandsmeistara KR 3-0 í Vesturbæ þar áður. Bein útsending frá Nesinu hefst kl. 13:50.

Kl. 13:55 hefst síðan bein útsending á Stöð 2 Sport 3 frá leik Kristianstad og Rosengard í sænsku úrvalsdeildinni, en Glódís Perla Viggósdóttir leikur með liði Rosengard.

Þrír leikir eru á dagskrá í ítölsku úrvalsdeildinni. Kl. 15:05 hefst nágrannaslagur Juventus og Tórínó, Tórínóslagurinn, en margir af bestu leikmönnum heims leika með liði Juventus, þar á meðal Cristiano Ronaldo. Juventus er með fjögurra stiga forskot á Lazio á toppi deildarinnar en Lazio mætir einmitt Milan í kvöld kl. 19:35. Þá verður einnig sýnt frá leik Sassuolo og Lecce kl. 17:20 en allir leikirnir verða í beinni á Stöð 2 Sport 2. 

Íslandsmeistarar KR fá Víking Reykjavík í heimsókn í Vesturbæinn kl. 16:40. KR-ingar unnu Skagamenn í síðustu umferð eftir 0-3 tapið gegn HK þar áður. Víkingar svöruðu gagnrýnisröddum á vellinum með því að gjörsigra FH 4-1 í síðustu umferð. Þetta verður áhugaverður leikur tveggja liða sem ætla að vera í toppbaráttu í sumar. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 Sport. 

Strax eftir leik KR og Víkinga hefjast Pepsi Max tilþrifin í umsjón Kjartans Atla Kjartanssonar á Stöð 2 Sport kl. 19. Þar fer hann yfir leiki dagsins í Pepsi Max deild karla ásamt sérfræðingi. Öll mörkin og atvikin úr leikjunum skoðuð auk þess sem rætt er við þjálfara og leikmenn.

Fyrir golfáhugamenn er PGA mótaröðin á sínum stað, en sýnt verður frá þriðja deginum á Rocket Mortgage Classic mótinu á Stöð 2 Golf á slaginu 17:00.

Alla dagskránna í heild sinni má nálgast með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×