Innlent

Hálfur milljarður í nýtt hótel í Bláskógabyggð

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bjarni Kristján (t.v.) og Jóhann Guðni Reynisson, tveir af eigendum „Stakrar gulrótar ehf.“, sem reisir 40 herbergja hótel/gistihús í Reykholti í Biskupstungum. Skiltið vísar á núverandi gistihús og lóð þeirra í Reykholti sem sést í bakgrunni. Á myndina vantar Kenneth Peterson hjá Columbia Ventures sem einnig á hlut í félaginu.
Bjarni Kristján (t.v.) og Jóhann Guðni Reynisson, tveir af eigendum „Stakrar gulrótar ehf.“, sem reisir 40 herbergja hótel/gistihús í Reykholti í Biskupstungum. Skiltið vísar á núverandi gistihús og lóð þeirra í Reykholti sem sést í bakgrunni. Á myndina vantar Kenneth Peterson hjá Columbia Ventures sem einnig á hlut í félaginu. Ljósmynd/Aðsend.

Framkvæmdir eru að hefjast við bygginu fjörutíu herbergja hótels í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð, sem mun kosta um hálfan milljarð króna. Hótelið verður tilbúið næsta vor.

Nýja hótelið verður byggt í Fagralundi í Reykholti skammt frá Friðheimum og við Gullna hringinn. Þrjár fjölskyldur standa að byggingunni en forsvarsmaður verkefnisins er Jóhann Guðni Reynisson. Hótelið kemur í einingum frá Noregi.

„Hótelið byggir mikið á tveggja manna gistingu þannig að við gerum ráð fyrir því að halda áfram að fá til okkar ferðamenn, sem eru á bílaleigubílum. Það breytist núna, við getum líka tekið á móti hópum en ég reikna með að bílaleigutraffík verði í öndvegi hjá okkur allavega til að byrja með,“ segir Jóhann Guðni.

Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar (t.h.), með eigendunum og eiginkonum þeirra þegar verkefnið var kynnt í vikunni.Ljósmynd/Aðsend.

Það vekur óneitanlega athygli að ráðist sé í hótelbyggingu á þessum tíma þegar kórónuveiran er en í gangi og lítið sem ekkert af ferðamönnum á landinu.

„Við höldum samt að það sé besti tíminn að gera það á meðan það er tiltölulega rólegt yfir og fáir erlendir ferðamenn á ferðinni, sem er náttúrulega langstærsti viðskiptamannahópurinn okkar, þannig að ef ekki núna, þá hvenær,“ segir Jóhanna Guðni og bætir við;

„Reykholt er líka mjög vaxandi núna, þar eru miklar framkvæmdir og Friðheimar draga til sín hundruð þúsunda ferðamanna á hverju ári og það er góður veitingastaður bara í næsta húsi við okkur, sem heitir Mika, Bjarnabúð, sundlaugin og öll þessi þjónusta á svæðinu, stutt á Gullfoss og Geysi og Þingvelli.“

Hluti af eigendum, starfsliði, hönnuði og verktaka sem að verkefninu koma ásamt umboðsaðila Moelven á Íslandi og sveitarstjóra Bláskógabyggðar, sem komu saman vegna byggingar nýja hótelsins í Reykholti.Ljósmynd/Aðsend.

Jóhann Guðni er sannfærður að nýja hótelið muni ganga mjög vel og ferðamenn eigi eftir að streyma á ný til landsins.

„Orðspor íslands er bara það sterkt á heimsvísu að við höfum enga ástæða til að vera annað en bjartsýnir og látum bara vaða á þetta.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×