Íslenski boltinn

„Eins gott að Guð­jón komist í liðið því annars biður hann bara um að fá að fara eitt­hvað annað“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Reynir og Davíð voru spekingar Pepsi Max-stúkunnar í gærkvöldi.
Reynir og Davíð voru spekingar Pepsi Max-stúkunnar í gærkvöldi. vísir/s2s

Reynir Leósson, einn spekingur Pepsi Max-deildarinnar, segir að það sé mikilvægt að Guðjón Pétur Lýðsson fái að spila hjá Stjörnunni því annars skipti hann brátt um lið á nýjan leik.

Miðjumaðurinn öflugi gekk í raðir Stjörnunnar að láni á lokadegi félagaskiptagluggans en félagaskiptin vöktu mikla athygli. Álftnesingurinn hafði verið á mála hjá Breiðablik.

Stjörnumenn eru í sóttkví og það var m.a. til umræðu í Pepsi Max-stúkunni í gær en nágranni Davíðs Þórs Viðarssonar er einmitt annar þjálfari Stjörnunnar, Ólafur Jóhannesson.

„Í þau skipti sem ég hef hitt hann, í góðri fjarlægð, þá hefur hann verið léttur á því. Það vantar ekkert upp á það. Ég held að Stjörnumenn séu ekkert sáttir með að spila alla þessa leiki í ágúst og auðvitað verður mikið álag á þeim en eins og þetta er búið að spilast þá eru þeir sáttir. Öll toppliðin hafa verið að missa stig og þeir hljóta að vera mjög ánægðir með það,“ sagði Davíð.

Davíð reiknar með að miðja Stjörnunnar verði þeir Eyjólfur Héðinsson, Alex Freyr Hauksson og svo Guðjón Pétur. Við það færist Hilmar Árni út á kant.

„Mér finnst það ekkert ólíklegt að Alex og Eyjólfur verði varnasinnaðir og Guðjón Pétur fyrir framan þá,“ sagði Davíð en Reynir var ekki sammála.

„Auðvitað geta góðir fótboltamenn alltaf spilað saman en ég er ekki keyptur á að þeir verði bæði með Eyjólf og Guðjón Pétur. Mér finnst þeir líkir leikmenn að mörgu leyti og mér finnst Guðjón Pétur virka betur sem átta. Ekki upp í tíunni.“

„Það er eins gott að Guðjón Pétur komist í liðið því annars biður hann bara um að fá að fara eitthvað annað,“ bætti Reynir við.

„Við sögðum það í upphitunarþættinum fyrir mótið að það myndi stefna í vesen og hann kom sjálfur og sagði að hann myndi setja sokk upp í Hjörvar [Hafliðason, fjölmiðlamann] eða einhvern, því hann yrði kominn í liðið eftir smá tíma.“

Klippa: Pepsi Max-stúkan - Hvað gerir Stjarnan þegar hún losnar úr sóttkví?



Fleiri fréttir

Sjá meira


×