Fótbolti

Markvörðurinn magnaði sá leikjahæsti frá upphafi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Buffon í leiknum gegn Torínó.
Buffon í leiknum gegn Torínó. Nicolò Campo/Getty Images

Markvörðurinn Gianluigi Buffon varð um helgina leikjahæsti leikmaður í sögu Seríu A, ítölsku úrvalsdeildarinnar. Tók hann fram úr goðsögninni Paolo Maldini sem lék allan sinn feril með AC Milan.

Buffon stóð á milli stanganna í leik Juventus og nágranna þeirra í Torínó. Fór það svo að áttfaldir Ítalíumeistarar Juventus unnu leikinn örugglega 4-1. Liðið er þar með komið í frábæra stöðu til að landa sínum níunda meistaratitli í röð en aðrir eins yfirburðir hafa ekki sést í ítölsku deildinni.

Leikurinn var einnig merkilegur fyrir þær sakir að hann var sá 648. deildarleikur markvarðarins magnaða á ferlinum. Þar með hefur Buffon leikið einum leik meira en Maldini gerði. Juventus var vel undirbúið fyrir þetta magnaða afrek en treyjur liðsins voru sérstaklega merktar til heiðurs þessa magnaða leikmanns.

Treyjur Juventus voru merktar sérstaklega í tilefni dagsins.Valerio Pennicino/Getty Images

Töluvert er síðan Buffon lék sinn fyrsta leik í deildinni en hann lék með – þáverandi – stórliði Parma árið 1995, rétt áður en hann varð 18 ára gamall. Buffon fór svo til Juventus sumarið 2001 og varð þar með dýrasti markvörður heims. Var hann dýrasti markvörður heims allt þangað til Manchester City fjárfesti í Ederson Moraes sumarið 2017.

Buffon lék með Juventus allt til 2018 þegar hann samdi við Paris Saint-Germain í Frakklandi til eins árs. Snéri hann aftur til Juventus að því loknu með því loforði að hann fengi tækifæri til að bæta leikjamet Maldini.

Sem stendur er Wojciech Tomasz Szczęsny, fyrrum markvörður Arsenal, aðalmarkvörður Juventus. Hinn 42 ára gamli Buffon ætlar þó að vera honum aðeins lengur til halds og trausts en Buffon framlengdi samning sinn á dögum út tímabilið 2020/2021. Þegar hanskarnir loks fara á hilluna frægu hefur Buffon gefið það út að hann muni setjast á skólabekk og klára gagnfræðiskóla.

Buffon lék á sínum tíma 176 landsleiki fyrir ítalska landsliðið. Var hann einn af mönnunum sem sá til þess að liðið varð heimsmeistari sumarið 2006. Þá á hann silfur frá Evrópumótinu 2012 ásamt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×