Tottenham sigraði Everton í Evrópubaráttunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Spurs fagna markinu mikilvæga í dag.
Leikmenn Spurs fagna markinu mikilvæga í dag. getty/Chloe Knott

Tottenham tók á móti Everton í London í eina leik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 1-0 sigur Tottenham í bragðdaufum leik.

Eina mark leiksins leit dagsins ljós á 24. mínútu þegar Giovanni Lo Celso átti skot sem fór af Michael Keane og í netið. Var markið skráð sem sjálfsmark á Keane. 

Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði leikinn fyrir Everton en fór út af á 67. mínútu fyrir Brasilíumanninn Bernard. 

1-0 sigur Tottenham staðreynd og með sigrinum fara Tottenham upp í 8. sæti deildarinnar með 48 stig, einu stigi minna en erkifjendur þeirra í Arsenal.

Gylfi og félagar í Everton sitja í 11. sæti með 44 stig. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira