Viðskipti innlent

Hótel Saga óskar eftir greiðsluskjóli

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hótel Saga hefur mátt þola mikið tekjufall eins og önnur ferðaþjónustufyrirtæki.
Hótel Saga hefur mátt þola mikið tekjufall eins og önnur ferðaþjónustufyrirtæki. Vísir/vilhelm

Hótel Saga hefur bæst í hóp þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem hafa sótt um greiðsluskjól á síðustu dögum og vikum. Áður hefur verið greint frá því að dótturfélög Arctic Adventures og rútufyrirtækið Gray Line fóru sömu leið, vegna tekjuhruns með tilkomu kórónuveirunnar.

Óskað er eftir greiðsluskjóli í samræmi við lög um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar sem samþykkt voru á Alþingi 16. júní síðastliðinn. Markmið laganna er að aðstoða fyrirtæki sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna farsóttarinnar; t.a.m. með því að lengja lánstíma og fresta gjalddögum skulda.

Meðal skilyrða sem fyrirtæki verður að uppfylla til að komast í greiðsluskjól er að mánaðarlegar heildartekjur af starfseminni hafi lækkað um 75 prósent eða að slíkt tekjufall sé fyrirséð á næstu mánuðum.

Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelsstjóri á Sögu, segir í samtali við Viðskiptablaðið að slíkur samdráttur sé fyrir hendi á hótelinu. Bókunarstaða hótelsins hafi verið um 12 prósent og að það stefni í svipað hlutfall í júlí. Tekjur sumarsins verði því að líkindum innan við 10 prósent, samanborið við fyrrasumar.

Ingibjörg gerir að sama skapi ráð fyrir að greiða þurfi með rekstri Hótels Sögu næstu mánuði og að afla þurfi nýs hlutafjár. Fyrst og fremst sé þó horft til þess að „halda súrefni í fyrirtækinu“ eins og það er orðað í Viðskiptablaðinu. Greiðsluskjólið veiti andrými.

„Þetta gefur okkur þriggja mánaða svigrúm til þess að gera samkomulag við lánardrottna og vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins,“ segir Ingibjörg.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×