Sport

Dagskráin í dag: Víkingur fær Val í heimsókn, Óli Kristjáns mætir á gamla heimavöllinn, Barcelona og Pepsi Max tilþrifin

Ísak Hallmundarson skrifar
Arnar Gunnlaugsson og lærisveinar í Víkingi mæta Valsmönnum í dag en bein útsending hefst kl. 17:45.
Arnar Gunnlaugsson og lærisveinar í Víkingi mæta Valsmönnum í dag en bein útsending hefst kl. 17:45. vísir/bára

Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Tvær beinar útsendingar úr Pepsi Max deildinni, spænski boltinn, enska b-deildin og loks Pepsi Max tilþrifin.

Við hefjum leik kl. 15:55 á Stöð 2 Sport 2 en þá verður sýnt frá leik West Bromwich Albion og Derby County í næstefstu deild á Englandi í beinni útsendingu. West Brom eru að berjast um að komast beint upp í ensku úrvalsdeildina en Derby sem hafa verið í hörkuformi undanfarið eru að berjast um að ná umspilssæti.

Klukkan 17:45 hefst bein útsending frá leik Víkings R. og Vals í Pepsi Max deild karla. Víkingar verða án nokkurra mikilvægra leikmanna í vörninni, þeirra Sölva Geirs Ottesen, Kára Árnasonar og Halldórs Smára Sigurðssonar. Valur þarf að rétta úr kútnum eftir 1-4 skell á heimavelli gegn ÍA í síðustu umferð.

Nágrannaslagur Barcelona og Espanyol verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 kl. 19:50. Messi og félagar þurfa að halda pressu á Real Madrid en þeir eru fjórum stigum á eftir þeim þegar fjórar umferðir eru eftir.

Klukkan 20:00 hefst síðan bein útsending frá lokaleik kvöldsins í Pepsi Max deildinni, þar sem taplausir Blikar mæta FH-ingum. Ólafur Kristjánsson sem skilaði eina Íslandsmeistaratitli Breiðabliks í hús er þjálfari FH og mun því mæta á sinn gamla heimavöll. Það má búast við hörkuleik tveggja liða sem ætla sér að vera í toppbaráttunni í sumar, en leikurinn er ekki síst mikilvægur fyrir FH sem tapaði síðasta leik í deildinni 4-1 gegn Víkingi.

Strax eftir leik Blika og FH verða Pepsi Max tilþrifin í beinni útsendingu þar sem Kjartan Atli Kjartansson fer yfir leiki dagsins ásamt sérfræðingi. Öll mörkin og atvikin úr leikjunum auk þess sem rætt er við þjálfara og leikmenn.

Alla dagskránna má nálgast hér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×